Árbók íþróttamanna - 01.12.1951, Síða 338
hefur hann unnið bikarinn til fullrar eignar. — Á þessu fyrsta landsmóti
urðu úrslit þau, að Olafur Jóhannesson (SR) varð íslandsmeistari í
skautahlaupi 1950 með 199,533 stigum. Stigin eru reiknuð þannig, að
lagður er saman meðaltími á hverjum 500 m. úr öllum hlaupunum, þannig
að í 500 m. hlaupi gildir tíminn, sem næst í því hlaupi, en í 1500 m.
Iilaupi tíminn deildur með þremur o. s. frv. Bezti maður hlýtur því
lægsta stigatölu.
Listhlaup á skautum er viðurkennt sem ein fegursta íþrótt, sem til
er. Enda þótt e. t. v. sé hæpið að tala um listhlaup hér á landi, eru þó
nokkrir, sem reynt hafa að halda uppi æfingum í því. Keppni í list-
hlaupi verður erfitt að koma upp hér á landi fyrst um sinn, og senni-
lega ekki hægt fyrr en skapazt hafa betri skilyrði til æfinga, helzt
skautahöll. Kröfur þær, sem gerðar eru til keppandans í listhlaupi, eru
það miklar, að enginn getur tekið þátt í því, nema með mikilli og góðri
þjálfun. I keppni í listhlaupi eru gefnar einkunnir. Keppnina má greina
í tvennt, svokallaðar skylduæfingar og frjálst listhlaup. Einkunnin fyrir
skylduæfingarnar gildir að tveimur þriðju hlutum, en einkunnin fyrir
frjálst listhlaup að einum þriðja. Skylduæfingamar em ákveðnar æfingar,
sem krefjast mikillar nákvæmni. Hér á Akureyri hefur fyrst og fremst
verið æft listhlaup og íshockey, en hraðhlaupinu verið lítill gaumur
gefinn til þessa. Á skautamótinu hér 1941 fór fram sýning á listhlaupi
og skautadansi. Listhlaupið sýndu þeir Gunnar Thorarensen, sem sýndi
skylduæfingar, og Ágúst Ásgrímsson, sem sýndi frjálst listhlaup. En þeir
hafa síðan báðir verið hinum yngri til fyrirmyndar og leiðbeint þeim. I
Reykjavík mun frú Katrín Viðar, formaður SR, mesta alúð hafa lagt
við listhlaupið. Með byggingu skautahallar í Reykjavík mundi stómm
batna aðstaða til listhlaupsæfinga þar, sama gildir um íshockey, en fyr-
ir hraðhlaup mundi slík skautahöll aftur á mótl ekki koma að notum.
Ishockey er lítt þekkt hér á landi, en er mjög algengt víða erlendis,
einkum í Bandarikjunum og Kanada. Þess má geta, að í kanadiska is-
hockeyliðinu, sem vann á Olympíuleikjunum 1920, vom eingöngu Is-
lendingar úr íþróttafélaginu Fálkinn í Winnipeg. Skautafélag Akur-
eyrar hefur æft íshockey frá því það var stofnað, en þá hafði þegar ver-
ið byrjað að æfa það hér á Akureyri. Félagið hefur æft íshockey á
hverjum vetri eftir því sem ísar hafa leyft, en sökum þess, hve ís er
oft óstöðugur, hefur verið erfitt að halda skipulegar æfingar á merktu
svæði, en vonir standa til, að aðstæður til þess batni, þegar félagið
kemur skautasvæði sínu í lag. I Reykjavík hafa sum íþróttafélögin haft
í hyggju að æfa íshockey, en úr því mun þó ekki hafa orðið. I vetur
336