Árbók íþróttamanna - 01.12.1951, Síða 339
var stofnuð íshockeydeild innan SR, og er vonandi, að hún vaxi og dafni.
Skautasiglingar munu fátíðar. I íþróttablaðinu Þrótti frá 1923 er
þess þó getið, að stöku sinnum bregði manni fyrir með skautasegl á
Tjörninni, en fátitt sé það mjög. Hér á Akureyri kernur það einnig
fyrir, að menn sjáist með skautasegl. Með skautasegli er hægt að ná
geysilegum hraða. I Bandaríkjunum hafa menn t. d. náð a. m. k. 55
milna hraða á klst. með skautasegli.
Tvö félög starfa nú hér á landi, sem eingöngu vinna að eflingu skauta-
íþróttar, þ. e. Skautafélag Akureyrar og Skautafélag Reykjavíkur.
Auk þeirra starfar í Hafnarfirði Skíða- og skautafélag Hafnarfjarðar.
Mörg önnur féiög hafa skautaíþrótt á stefnuskrá sinni, en yfirleitt mun
íþróttin hafa verið stunduð lítið á þeirra vegum til þessa.
Bæði á Akureyri og í Reykjavík voru til skautafélög á undan þeim,
sem nú eru starfandi. Skautafélag Akureyrar hið eldra mun hafa starf-
að í nokkur ár á milli 1900 og 1920. Þetta félag og hið eldra Skautafélag
Reykjavíkur munu að vísu hvorugt hafa unnið eingöngu að eflingu
skautaíþróttar, en að nokkru starfað sem skemmtifélög. Allmikið lífs-
mark mun hafa verið með Skautafélagi Reykjavíkur fyrstu árin, en það
var stofnað 1893 og því eitt af elztu íþróttafélögunum. Klemens
Jónsson segir um það í Sögu Reykjavíkur: „Það hefur með sprettum
verið mjög fjörugt, enda svell venjulega ágætt, ef frost er á Tjörninni.
En félagið hefur ekki alltaf viljað halda sér við það, heldur hefur það
fengið leyfi til þess að veita vatni á Austurvöll og búið þar til skauta-
svell. Sama gerði það einnig á íþróttavellinum, en nú í nokkur ár virð-
ist það vera með litlu lífsmarki.“ I íþróttablaðinu Þrótti frá 1. marz
1919 stendur: „Skautasvell oft í vetur. Skautafélag Reykjavíkur starf-
aði af mesta áhuga. Stóð til að halda mót í janúar, en varð ekki vegna
æfinga- og þátttökuleysis.“ Félagið var lagt niður árið 1927.
Skautafélag Akureyrar, það er nú starfar, er stofnað 1. janúar 1937.
Fyrsti formaður þess og einn aðalhvatamaður að stofnun þess og efl-
ingu skautaíþróttar á Akurevri var Gunnar Thorarensen. Var hann
fonnaður þess í 7 ár. Núverandi formaður þess er Þorvaldur Snæbjörns-
son. Félagið hefur haldið uppi æfingum í íshockey og listhlaupi, eftir
þvi sem ís hefur leyft. Þá hefur það og stundum auglýst, þegar ís hefur
verið góður, og þá oft lvst hann upp á kvöldin. Félagið hefur nýlega
fengið á leigu svæði fyrir skautabraut, og var hafin vinna við það í
sumar sem leið. Hyggst félagið koma sér þar upp hlaupabraut og ís-
hockeysvæði.
Skautafélag Reykjavíkur er stofnað 31. október 1938. Fyrsti formað-
337 22