Úrval - 01.04.1947, Page 44
42
■qrval
stúlkur anga af honum. Ég hefi
komizt að þeirri niðurstöðu, að
hinir innfæddu séu heiðingjar;
þeir dýrka marga guði, og letra
nöfn þeirra með ljósstöfum á
kofa sína. Mest virðast þeir
dýrka gyðjuna Coca Cola og
hinn mikla guð benzínþefsins
— Ford. Svo er að sjá sem hinn
síðarnefndi skipi þann sess, er
Zeus hafði með Grikkjum forð-
um.
Hinir innfæddu eru afar mat-
gráðugir og eru sítyggjandi.
Því miður eru þeir með öllu
ósnortnir af siðmenningu. Sam-
anborið við hraðann í lífi
Spánverja er líf Ameríku-
manna mjög hægfara. Þeir
telja að fótgangandi maður
fari mjög hratt, og til þess að
draga úr hraðanum — nota þeir
ákaflega mikið af svoköllum
„bílum.“ Þeir sitja í bílunum,
sem fara í löngum röðum og
lúshægt gegnum borgina. Þá er
þeim skemmt.
Ég hefi verið viðstaddur
einkennilega athöfn á stað, sem
nef nist „Broadway.“ Mikill f jöldi
innfæddra safnaðist saman í
stórum kofa. Nokkrar konur
stigu upp á pall, og fóru að færa
sig úr fötunum, á meðan slegn-
ar voru villimannatrumbur og
blásið var í saxófóna. Áhorf-
endur klöppuðu saman lófum
eins og börn. Þegar síðasta
konan er orðin nærri nakin og
æsing hinna innfæddu hefir náð
hámarki, skeður hið óskiljan-
lega við athöfnina: Tjaldið fell-
ur og áhorfendurnir fara burt.
Ég vona, að ég geti haldið á-
fram að kanna þetta merkilega
land. Hinir innfæddu eru mjög
góðgjarnir og hjálpsamir við
ókunnuga."
>V -k
A listsýningu.
Hjónin voru á listsýningu. Maðurinn var búinn að standa
lengi fyrir framan stórt olíumálverk, sem bar nafnið „Vor.“ Það
var af ungri stúlku, töfrandi fallegri, og var nekt hennar hulin
af nokkrum vorgrænum laufblöðum, sem komið var fyrir á
hernaðarlega mikilvægum stöðum. Allt í einu gall við húsbónda-
leg rödd eiginkonunnar: „Jósef, hvað ætlarðu að standa þama
lengi? Ætlarðu að bíða til hausts — eða hvað?“
— Neal O’Hara.