Úrval - 01.04.1947, Blaðsíða 131
Byggt úr bóluin.
Framhald af öftustu Uápusíðu.
1 stað kökudeigsins notaði hann
ýmsar tegundir gúmmídeigs. Hann
blandaði það „lyftidufti" og hitaöi
það síðan upp. Við það mynduð-
ust loftbólur og deigið tók að
bólgna. Brátt var það eins og
frauð. Þegar hitinn var enn auk-
inn, tók hin þunna gúmmíhúð
utan um hverja einstaka bólu að
harðsoðna (vúlkaníserast).
„Gúmmíkaka,“ sem þannig er
bökuð, er I raun og veru ekki
annað en ótal örsmáar gúmmí-
blöðrur, sem eru fastar hver við
aðra. Auk þess sem deigið er mjög
létt, líkt og bóluplastið, er það
gætt mýkt og fjaðurmagni venju-
legs gúmmís. Margar verksmiðjur
búa sig nú til aS framleiða bólu-
gúmmí. 1 styrjöldinni reyndist það
frábært efni í dýnur og húsgagna-
bólstur. Það hefir þá kosti fram
yfir annað bólstur, að það er
næstum óslítandi, heldur lögun
sinni næstum takmarkalaust og
verður ekki möl eða öðrum mein-
dýrum að bráð.
Seinna gerðu menn athyglis-
verða uppgötvun í sambandi við
„gúmmikökuna". Bfnafræðingarn-
ir bjuggu til sérstakt „lyftiduft",
sem gætt er þeim eiginleik, að
eftir að það hefir lyft deiginu og
myndað í því bólur, hefst í því
loftmyndun að nýju. Við það
springa hinar örsmáu bólur, likt
og gúmmíblaðra barnsins, þegar
hún er blásin of mikið upp.
En að einu leyti haga bóiurnar
sér öðruvísi en blöðrurnar. Hver
einstök bóla er tiltölulega sterk
og er auk þess föst við bólurnar
í kring. Hún fellur ekki saman
þegar hún springur. Ef maður at-
hugar hana undir smásjá, þá lítur
hún út eins og gúmmíbolti, sem
skorin hefir verið á stór rifa. Það
er hægt að þrýsta öllu lofti úr
boltanum svo að hann verður flat-
ur, en ef honurn er sleppt, tekur
hann hina upphaflegu lögun sína
aftur og sogar í sig loft.
Af þessu leiðir, að loftið á
frjálsa leið út og inn um gúmmí-
deig, sem þannig hefir verið með-
höndlað. Þetta er augljós kostur,
þegar það er notað í dýnur, kodda
og sessur. Loftið þrýstist úr sess-
unni, þegar sezt er á hana, og
sogast inn í hana aftur, þegar
staðið er upp. Það er hægt að
klæða deigiö með flóka eða ein-
hverju öðru mjúku efni til þess að
auka á fjaðrandi mýkt þess.
Svipað efni er framleitt úr
sterku plasti, sem minnir á cellu-
lose. Það lítur út eins og venju-
leg bómull, en er miklu léttara,
sterkara og auk þess vatnsþétt.
Nota má það sem bólstur í hús-
veggi, milli tveggja krossviðs- eða
aluminíumplatna. Það er frábær
hljóð- og hitaeinangrari, og má
ætla að það verði mikið notað við
húsbyggingar í framtíðinni.
Framhald á 2. kápusíðu.