Úrval - 01.04.1947, Blaðsíða 122
120
tjRVAL
ur vinur Roosevelts forseta og
myndi skýra honum frá ástand-
inu í rauðu lýðveldunum. Þegar
Lanny hafði lokið máli sínu var
Kínverjinn orðinn ljúfur eins og
lamb, og sagðist álíta að það
væri ágætt að hin amerísku hjón
kynntu sér hinn nýja heim 1
norðri, og skýrðu amerísku
þjóðinni rétt frá öllu staðreynd-
um.
„En hvernig getum við feng-
ið vegabréf til landamæranna ?“
spurði Lanny.
Hann taldi það ekki miklum
erfiðleikum bundið. Hann sagði,
að mótspyrnuhreyfingin réði
fram úr slíkum málum með
ýmsu móti. Auðvitað væri ó-
hægra um vik að dulbúa þau,
þar sem þau voru hvít. Ef til
vill yrðu þau að kaupa vegabréf
af einhverjiun embættismanni
Chungking-stjórnarinnar. Han
skýrði frá því, að kommúnist-
amir hefu upprætt alla
mútustarfsemi og lagt við
dauðarefsingu; en embættis-
menn Chungkingstjórnarinnar
væru með afbrigðum mútuþæg-
ir og notuðu rauðliðar sér það í
sínar eigin þarfir. Han kvaðst
búast við, að hann gæti útvegað
þeim vegabréf til Suður-Shensi
fyrir tvö þúsund kínverska dali,
en er þangað kæmi gætu rauð-
liðar smyglað þeim yfir landa-
mærin á næturþeli.
Lanny tók þessari uppástungu
vel og bætti við, að hann væri
fús að greiða hinurn stéttvísa
Kínverja aðra tvö þúsund dali
fyrir leiðsögn og túlkun á ferða-
laginu. Þetta voru ekki mútur,
því að Lanny áleit, að Han
starfaði að vilja yfirboðara
sinna, eða flokks, sem áreiðan-
lega rak starfsemi sína í Hengy-
ang í bráðri lífshættu.
Loks komust þau til Norður-
Shensi, en þar réðu kommúnist-
ar lögum og lofum. Þau tóku að
virða fyrir sér þetta afskekta
og lítt ræktaða land, sem hinir
nýju landnemar voru að byggja
upp. Han skýrði svo frá, að
hver herdeild í her uppreisnar-
manna hefði orðið að stunda
landbúnað og sjá sér fyrir fæðu
sjálf, þar sem hinir dreifðu og
sárfátæku bændur hefðu ekki
verið aflögufærir um neitt. Það
var tekið á móti ferðalöngunum
við varðstöð eina og þeim var
boðið til snæðings í leirkofa með
stráþaki — það var „klúbbhús-
ið.“ Um kvöldið sátu þau fyrir
utan kofann á meðal hinna grá-
klæddu hermanna, sem skemmtu