Úrval - 01.04.1947, Blaðsíða 119
TIL MIKILS AÐ VINNA
117
um fannst ekkert kyndugt við
það, þó að auðugur Ameríku-
maður ferðaðist með tvær eigin-
konur sínar, og er Althea skýrði
honum frá því, að hr. Budd
væri forríkur og væri kominn til
þess að veita Kínverjum aðstoð
gegn Japönum, varð hann allur
eitt bros og hneigði sig djúpt.
Síðan bauð hann þeim til mið-
degisverðar í tehúsi einu, sem
var gert úr bambus og reyr.
Er þau höfðu lokið máltíð-
inni, lögðu þau af stað. Næsta
þorp, sem þau komu í, var miklu
stærra; húsin voru byggð þétt
saman, til þess að spara land-
rými til ræktunar.
Þau fóru með langferðar-
bifreið til Loi-ho dalsins. Þar
var meiri menningarbragur en
þau höfðu átt að venjast, það
sem af var leiðarinnar. Þó var
mörgu þarna ábótavant. Enda-
lausar lestir burðarmanna
fluttu birgðir suður til Canton-
vígstöðvanna, en hópar flótta-
manna streymdu jafnframt frá
vígstöðvunum; það var hörmu-
leg sjón. Lítið var um matvæli,
dýrtíð mikil og húsnæðisleysi.
Það var svo lítið í fljótinu, að
ekki var hægt að sigla eftir því.
Allar járnbrautalestir voru
yfirfullar af fólki, sumt hékk
jafnvel utan á vögnunum.
Þeim tókst að fá far með lest,
sem fór til Hengyang, sem áður
hét Henchow. Það var hellirign-
ing, þegar þau komu til borgar-
innar, en þau höfðu næga pen-
inga meðferðis og þá stóð ekki
á burðarmönnunum. Trúboðs-
stöðin stóð uppi á hæð, og inn-
an skamms stóðu þau við dyrn-
ar á æskuheimili Altheu. Hún
kallaði, og í sömu andrá kom
gömul og gráhærð kona hlaup-
andi og faðmaði Altheu að sér,
frá sér numin af fögnuði. Það
var mikill fagnaðarfundur, því
að dóttirin hafði verið talin af.
Á æskuárum sínum hafði
Lanny lesið bókina Dóttir jarð-
ar eftir Agnes Smedley. Það er
saga stúlku, sem var fædd af
fátækum, amerískum foreldrum
og flækktist með þeim um þvert
og endilangt landið og bjó við
eymd og basl. Hún gat þó
menntast dálítið, varð kennslu-
kona, gerðist róttæk í skoðun-
um og vinur allra kúgaðra um
gervallan heim. Hún ferðaðist
sem blaðakona til Kína, snerist
á sveif með kínverzkum verka-
lýð og slóst í för með Rauða
hernum.