Úrval - 01.04.1947, Qupperneq 53
ÉG ER LOKRÆSA-ROTTA
51
er félagi minn hné niður dauður
— úr hjartaslagi. Lokræsið var
aðeins fjögurra feta hátt, og ég
ég mátti drösla honum til skúff-
unnar og draga hann síðan til
uppgöngunnar, sjötíu eða átta-
tíu metra. Mig langar ekki
til að lenda í öðru eins aftur.
Öðru sinni tók ég nýliða með
mér niður í lokræsin. Ég gekk
á undan, rannsakaði ræsin,
athugaði loftgöt og annað þess
háttar. Við þurfum stundum að
ganga mikið á annan kílómetra,
áður en víst þykir, að ræsið sé
í lagi. Nýliðinn var á eftir mér
— eða það átti hann að vera.
Ég sneri mér við til þess að tala
við hann, en þá var hann hvergi
að finna. Enginn kærir sig um
að týna félaga sínum í lokræs-
unum. Ég leitaði hans með dun-
um og dynkjum í meira en
klukkustund og setti mig í
samband við aðra félaga mína,
sem voru að vinna í grendinni.
En allt kom fyrir ekki. Loks
datt mér dálítið í hug. Ég sendi
mann til ofanjarðarskýlisins, og
þar sat nýliðinn hinn rólegasti
og var að reykja. Það hafði
sloknað á ljóskeri hans, strax
og hann kom niður. Hafði hann
því gert sér hægt um vik, laum-
ast upp og beðið átekta í skýl-
inu. Þið megið reiða ykkur á, að
ég sagði honum til syndanna!
Verra var það þó í gamla daga,
áður en rafmagnsljóskerin
komu til sögunnar. Þá sloknaði
oft á lömpunum, þegar illa
horfði við. Einu sinni vorum við
tveir saman niðri í lokræsunum.
Á meðan skall á versta vatns-
veður, og brátt tók vatnið í ræs-
unum að vaxa. Þá dó á báðum
lömpunum okkar, svo að ekki
sáust handaskil. Reyndar þekkt-
um við ágætlega lokræsin á
þessum slóðum, en við urðum
samt að fálma okkur áfram
eftir veggjunum í áttina til upp-
göngunnar. og alltaf fór vatnið
hækkandi. Eftir tuttugu mín-
útna strit vorum við hólpnir.
Ég segi ekki, að við höfum orð-
ið hræddir, því að við vissum
vel, að um æðistund var enginn
lífsháski á ferðinni. Vatnið nam
þó vel í kné, er við komumst
upp úr.
1 rauninni ætti alls ekki að
fara niður í Iokræsin í rigningu.
Það er heldur ekki leyfilegt.
Vörður er ávallt hafður uppi
við, og hann gerir okkur að-
vart, hversu lítið sem ýrir úr
lofti. Það er vissara að hafa all-
an vara á, því að stundum verð-
ur straumurinn í ræsunum svo
7*