Úrval - 01.04.1947, Blaðsíða 126
124
tTRVAL
þekktur, að líkneski eða mynd
af honum var í hverjum skóla
og hverju heimili í Sovétríkjun-
um.
Á myndunum haf ði Stalin virzt
hár vexti, en í raun og veru var
hann ekki nema fimm fet og
fimm þumlungar á hæð, eða
nokkrum þumlungum lægri en
Lanny; þrekvaxinn, en ekki
feitur. Hann var í dökkblárri
úlpu og buxnaskálmunum var
troðið ofan í stígvélin. Hár hans
og skegg var grátt, andlitið föl-
leitt, og með bóluörum. Vinstri
handleggurinn var hálf visinn,
eins og á Vilhjálmi Þýzkalands-
keisara.
Hann var alvarlegur maður
og önnum kafinn, mátti ekki
eyða tímanum í glettni eða
kurteisishjal. Lanny stóð upp
og þeir tókust í hendur. Stalin
sagði, á rússnesku: „Það gleð-
ur mig að hitta yður, herra
Budd,“ og túlkurinn þýddi jafn-
óðum á ensku. Liðsforinginn dró
sig í hlé, og viðtalið hófst.
„Mér er sagt að faðir yðar
hafi framleitt flugvélar fyrir
nazistana,“ sagði Stalin, blátt
áfram, en þó með dulinni á-
herzlu.
„Ég barðist gegn því, en fað-
ir minn kvaðst vera framleið-
andi og biði sem slíkur vörur
sínar á opnum markaði. Þjóð-
verjar héldu lífinu í starfrækslu
hans í mörg ár.“
„Ég kannast vel við þessa
skoðun, herra Budd. Viðskipti
eru viðskipti."
„Ég endurtek það, sem faðir
minn hefir oft haldið fram: Það
eru ekki flugvélar sem eru þýð-
ingarmiklar, heldur flugvéla-
verksmiðjurnar; og þær eru í
Ameríku."
„Eins og stendur eru það
flugvélarnar, sem eru þýðingar-
miklar.“ Þetta sagði Stalin
mjög ákveðið.
Öðru hvoru, meðan samtalið
stóð yfir, velti gesturinn fyrir
sér þessari spumingu:
„Veit hann, að ég hefi verið
kunningi nazistaforingjanna ?“
„Mig langar að spyrja yður,
herra Budd — hvernig stendur
á því, að sonur amerísks auð-
kýfings hefir samúð með mál-
stað Sovétríkjanna ?“
„Ég verð að vera hreinskil-
inn, og taka það fram, að ég er
sósíalisti, en ekki kommúnisti.
En ég er andvígur Hitlersstefn-
unni af öllu hjarta, og fagna.
hverjum bandamanni í þeim á-