Úrval - 01.01.1965, Side 51
GILDRA, SEM VEIÐIR GLÆPAAIENN
4!)
farandi orS: „Hann getur fram-
kvæmt hina furSulegustu hluti,
einkum þegar notkun hans er
tengd ýmsum upplýsingarkerfum,
sem þegar eru fyrir hendi hjá okk-
ur.“ Er hann mælti þessi orð, hafði
hann i huga mál svipuð máli Jimmy
Kendricks, en það er einn af fyrstu
morðingjunum, sem litla, brúna
kassagildran hefur veitt. Kend-
ricks, sem var kaldur og harður
atvinnuglæpamaður, mjög taugaó-
styrkur, læddist inn í risakjörbúð
í Kaliforníu kvöld eitt í febrúar-
rnánuði árið 1960. Þar miðaði hann
byssu á verzlunarstjórann og
neyddi hann til þess að troða öll-
um peningum, sem selt hafði verið
fyrir þann dag', niður í innkaupa-
poka og hvarf svo á brott.
Lögregluþjónn, sem starfaði við
vegagæzlu á hraðbraut einni, er
lá norður á bóginn, stanzaði siðan
Kendricks nokkru síðar fyrir of
hraðan akstur. Kendricks gerði sér
grein fyrir því, að liklegt var, að
hann væri þegar grunaður um rán-
ið og skaut lögregluþjóninn til
bana. Að morðinu voru engin vitni,
og Kendricks hafði notað skamm-
byssu með 32 hlaupvídd, er var
alls ólík byssunni, sem hann hafði
miðað að verzlunarstjóranum. Þvi
var ekki hægt að tengja þessa tvo
glæpi saman með hjálp byssunn-
ar. En hann hafði ekki reiknað með
hinum nýtízku hjálpartækjum lög-
reglunnar.
Upplýsingar um ránið í kjörbúð-
inni og lýsing á glæpamanninum
höfðu verið sendar lögreglustöðv-
um um gervalla Kaliforníu. Siðan
voru „Identi-Kit“ stafir og númer
sendir til allra þeirra stöðvá, er
höfðu slík tæki í fórum sínum. Og
næstum tafarlaust barst svar frá
Sakamálarannsóknadeild Kaliforn-
iuríkis í Sacramento. Þa höfðu
gatakort úr sakaskrá yfir glæpa-
menn þá i Kalifoníu, sem sérstak-
lega lögðu fyrir sig vopnuð rán,
verið sett i flokkunarvél, og vél sú
valdi siðan alla þá, sem upplýsing-
arnar gátu á einhvern hátt átt við.
Aðeins 4 þeirra liktust eftirliking-
armynd „ldenti-Kit“-kassans, einn
nokkuð, tveir töluvert, en einn
geysilega mikið.
Og þegar verzlunarstjóranum
voru siðan sýndar raunverulegar
myndir af þessum 4 glæpamönnum,
valdi hann alveg hiklaust þá, sem
líktist eftirlíkingarmyndinni allra
mest, en það var einmit mynd af
Jimmy Kendricks. Hann var síðan
tekinn fastur 300 mílum frá þeim
slóðum, er hann hafði framið glæpi
þessa á, og þegar hann var látinn
ganga fyrir verzlunarstjórann, sagði
hann alveg ákveðið, að þetta væri
sami maðurinn.
En á meðan komu frekari upp-
lýsingar í Ijós. Vitað var, að Kend-
ricks var vanur að bera á sér .32
skammbyssu. Og á þvi augnabliki,
er lögregluþjónninn hafði verið
myrtur á hraðbrautinni, hafði eng-
inn annar sakamaður, er gæti haft
nægilegt tilefni að eigin mati til
þess að drepa lögregluþjón, gengið
laus á þessum slóðum. Kendricks
gafst upp við yfirheyrslurnar og
játaði á sig morð lögregluþjónsins.
Og nokkrum mánuðum siðar dó
hann í gasklefanum í San Quentin-
fangelsinu.