Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 151
Viðar]
REYKJANESSKÓLI 1934—1937
149
auðnazt að afla sér réttinda sinna af eigin ramleik, og
hann er byggður á þeim grundvelli, sem skólastarfsemi
undanfarinna ára var búin að leggja.
Og vér héraðsbúar væntum þess og treystum því, að
skólinn beri gæfu til þess að rækja það hlutverk, sem
honum er ætlað: Að búa nemendur sína undir lífið og
störfin, er þeirra bíða, og vekja þeim drenglund, fram-
tak og bjartsýni í brjósti, og skapa hjá þeim trú á landið
okkar fagra og þau verðmæti, sem fólgin eru í skauti
þess.
Framtfðar-fyrirætlanir.
Eftir Aðalstein Eiríksson.
Heimavist skólans er nú í bráðabirgðahúsi. Á næstu
árum þarf að byggja heimavistir, íbúð fyrir skólastjóra,
koma fyrir ljós- og gufubaði, byggja leikfimihús með
austurhlið laugarinnar, ásamt búningsklefum, steypiböð-
um og sólbaðsskýlum. Rækta þarf land skólans í gras-
fleti, gróðursetja runna og tré, gera íþróttavöll og smærri
leikvelli. Meðfylgjandi mynd sýnir framhlið væntanlegr-
ar skólabyggingar. Miðhluti byggingarinnar er núverandi
skólahús. í austur-álmu er á efri hæð íbúð námsmeyja,
átta fjögra manna herbergi, auk snyrtiherbergis og sal-
erna, á neðri hæð borðsalur, eldhús, herbergi ráðskonu
og starfsstúlkna, ljós- og gufubað og lækna-herbergi. í
vesturálmu, á efri hæð, íbúð skólastjóra, á neðri hæð,
íbúð námspilta, með sama fyrirkomulagi og íbúð stúlkna.
Þegar þessar framkvæmdir eru leystar, má vænta þess,
að starfsskrá skólans geti komist í framkvæmd. Fyrir-
hugað hressingarheimili byggist fyrst og fremst á því.
Síðar verður vonandi byggður sjóbaðstaður í Hveravík,
þótt skólinn sé, að minnsta kosti fyrst um sinn, hindraður
frá að standa að þeirri framkvæmd, þar eð hann fékk