Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 117
Viðar]
FUNDARGERÐ
115
ályktar að fela félagsstjórninni að hlutast til um það, að komið verði
á nemendaskiptum milli íslenzku héraðsskólanna og hliðstæðra ung-
linga og alþýðuskóla á Norðurlöndum«.
Þá var og samþykkt þessi tillaga:
»Fundurinn beinir þeirri ósk til Guðmundar Gíslasonar í sambandi
við væntanlega utanför, að hann kynni sér möguleika á nemenda-
skiptum í samræmi við tillögu þá, er samþykkt hefir verið um það
efni á fundinum«.
XII. Kennslubækur skólannci. — Nefnd sú, er um þetta mál fjall-
aði, kom fram með þessar tillögur, sem voru samþykktar:
»Fundurinn telur brýna nauðsyn á, að gefnar séu út alþýðlegar
bækur um líffræði, hagfræði, menningarsögu, eðlisfræði og verzlunar-
og viðskiptalandafræði, sem jafnframt megi nota við kenslu í alþýðu-
skólum. Lítur fundurinn svo á, að það ætti að vera hlutverk Menn-
ingarsjóðs að gefa út slíkar bækur.
Fundurinn ítrekar áskorun sína til reikningskenna'ra skólanna, að
þeir komi sér upp söfnum af dæmum, sem snerti meira daglega lífið
en dæmi kennslubókarinnar, sem notuð er í skólunum. Úr þessu sé
svo búin til dæmasyrpa og hún fjölrituð á kostnað félagsins.«
Nefnd var kosin til að hrinda þessu máli áfram og skipa hana
Guðmundur Ölafsson, Leifur Ásgeirsson og Þórir Steinþórsson.
XIII. Öryggi héraðsskólanna. — Mál þetta var aftur tekið til um-
ræðu að tilhlutun nefndar þeirrar, er í það var kjörin. Þessar tillög-
ur voru samþykktar:
a. »Fundur héraðs- og alþýðuskólakennara álítur, að fjárhagslegt
öryggi héraðsskólanna sé samkvæmt núgildandi lögum ekki nægi-
lega tryggt, þar sem líka framlög stofnenda móti framlögum ríkis-
sjóðs hafa ekki greiðzt, eins og lögin ætlast til. Stofnskuldir verða
því erfiðar fyrir skólana, sérstaklega þá minni.
Telur fundurinn því nauðsynlegt, að lögum um héraðsskóla verði
bréytt eða gerðar einhverjar aðrar ráðstafanir, svo að þeir geti hald-
ið rekstri sínum í heilbrigðu horfi og eigi þurfi að stöðva nauðsyn-
legar framkvæmdir«.
á. »Ennfremur telur fundurinn, að öryggi kennara héraðsskólanna
sé nú svo ótryggt, að hætt sé við því, að skólunum takist ekki að fá
hæfustu menn til kennslustarfa. Fyrir því telur fundurinn, að stefna
beri að því, að kennarar skólanna njóti sama öryggis og aðrir hlið-
stæðir opinberir starfsmenn, t. d. kennarar gagnfræðaskólanna.«
b. »Fundurinn telur, að skólastjórnum og fræðslumálastjórn beri
8*