Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 199
Viðar] ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M.
197
hlutfalls- og prósentureikning, flatar- og rúmmálsfræði bókina út,
en aðeins byrjað á jöfnum.
Danska. Bók Jóns Ófeigssonar, I. h. lesin í y. d. en II. h. að mestu
í e. d. Einn nemandi las sænsku. Lestrarbók G. L. og P. G. G.
Enska. Geirsbók var lesin. I y. d. 42 æfingar; í e. d. var að mestu
lokið við bókina af þeim, sem lengra voru komnir, en hinir lásu að
iesköflunum.
Handavinna stúlkna. Kennt var fatasaumur, skrautsaumur og flos,
leðurvinna, svo sem hanzkar, veski, möppur, buddur o. fl. Kennt var
og að skrautmála á dúka.
Handavinna pilta. f y. d. var kennt að búa til margar gerðir af
burstum og riða mottur, og nokkrir tóku þátt í leðurvinnu síðari
hluta vetrar. í e. d. var kennt bókband og bundu menn bæði fyrir
sjálfa sig og skólabókasafnið.
Sund æfðu allir nemendur skólans annan hvern dag. Luku 12 III.
stigi, 7 II. og 8 I. stigi. — Leikfimi æfðu flestir nemendur annan-
hvern dag og náðu 8 III. stigi, 13 II. og 4 I. stigi. — Gufuböð höfðu
allir á laugardögum.
Skiðaferðir, skautahlaup og knattleikir var iðkað eftir ástæðum,
færð og veðri. Flestir nemendurnir gengu á skíðum til vígslu skíða-
skálans á Gemlufallsheiði. Þegar gott skíðafæri var, æfðu nemendur
af kappi stökk, sveiflur og krókahlaup.
Félagslíf.
I skólanum starfar ungmennafélag, er »Gróandi« nefnist. Voru allir
nemendur skólans meðlimir þess og samþykkti félagið í heild sinni
þátttöku í Bindindisfélagi í skólum. Málfundir voru hafðir á Iaugar-
dagskvöldum. Voru oft mjög fjörugar umræður og stóðu þá fram
yfir miðnætti. Kaffihlé var haft kl. 10% og var stundum rætt yfir
borðum. Félagsblaðið »Fram« kom út með greinum, kvæðum og sög-
um hálfsmánaðarlega og þá lesið á fundum. Félagið vann að jóla-
tréssamkomu fyrir börn í nágrenninu, ásamt stúkunni Gyðu á
þrettánda dag jóla.
Almenna fjáraflasamkomu hafði félagið eina og gaf skíðasjóði
skólans ágóðann. Léku nemendur þá, ásamt Daníel Ágústínussyni
kennara, gamanleikinn »Ebenescr og annríkið«, og þótti takast mjög
vel. Nemendur fluttu og ræður og lásu upp.
Félagslíf skólans var með bezta móti, bindindisáhugi almennur og
reykingar kveðnar niður.
Formaður »Gróanda« var Magnús Guðmundsson, en umsjónarmað-
ur blaðsins Jón G. Óskarsson.
Á sunnudagskvöldum var ýmislegt haft til skemmtunar, svo sem