Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 91
Viðar]
Á SPRENGISANDl
89
Ekki höfðum við lengi farið eftir að Mjóadal þraut, þegar
kollóttur hnúkur, brattur að austan, sást framundan. Það
er Kiðagilshnúkur. Er hann nokkuð til suðausturs. Gamla
leiðin liggur vestan við hnúkinn, en vörðurnar liggja aust-
an í honum uppi undir brúnum. Rétt norðan við hnúkinn
komum við fram á brúnir dalsins, sem Skjálfandafljót fell-
ur eftir. Er það mikill dalur, allt frá Kiðagili og niður
undir byggð, og heitir nokkur hluti hans Króksdalur. Þar
er nú blásið land og auðn ein yfir að sjá, en þó er þar
nokkur hagi fyrir sauðfé. En í fornöld var þarna byggð
nokkur. Alllangt norðan við Kiðagil heitir á Helgastöðum.
Er þar bæjarstæði. Enn norðar er Galthóll; þar í nánd er
Smiðjuskógur. Getur þeirra örnefna í þætti af Hrana
hring í sambandi við víg Galta. Undirlendi töluvert er í
dalnum og væri hann hinn fríðasti, ef hann væri gróinn.
Skjálfandafljót fellur hér víða allbreitt, en er, á móts við
Kiðagilshnúk, ekki mikið vatnsfall við það, sem síðar
verður. Suðaustur frá aðaldalnum ganga ýmsir afdalir inn
til Odáðahrauns. Er minni eins þeirra, Hraunárdals, gegnt
Kiðagili. Hefir kvísl af Ódáðahrauni fallið þar allt niður
að Skjálfandafljóti. Klukkan 3 e. h. komum við á áfanga-
staðinn sunnan og austan í Kiðagilshnúk. Var þá komið
sólskin og blíðasta veður. Hagarnir eru við rætur hnúks-
ins á hjalla, milli hans og Kiðagils, sem þar liggur frá suð-
vestri til norðausturs. Við tjölduðum á lækjarbakka niðri
í gildragi rétt við fjallsræturnar, og slepptum hestunum á
hagann. Skorti þar ekki gras. Við höfðum verið 6 tíma
hingað úr Mýri, en það er talinn 10 tíma lestagangur. En
hér varð að hafa náttstað, því framundan var Sprengi-
sandur.
Þegar við höfðum búið um okkur í tjaldinu og matazt,
gengum við Knútur út að skoða umhverfið. Gengum við
fyrst á Kiðagilshnúk. Útsýni er hið fegursta af hnúknum,
þótt hann sé ekki hár, einkum sér langt til norðurs og
austurs. Til Norðausturs blasa við Mývatnsfjöllin öll, allt
norður til Lambafjalla. í austri er Ódáðahraun og yfir það