Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 179
Viðar]
Útdráttur úr
skólaskýrslum m. m.
Laugarvatnsskóli.
Skólaárið 1936-1937.
Skólinn var settur laugardaginn 3. okt.
Síðustu tvo mánuði skólans gegndi Guðmundur Gíslason, kennari,
skólastjórastörfum vegna fjarveru minnar.
Breytingar á kennaraliðinu voru þær, að aðstoðarkennari í
íþróttum var að þessu sinni Jón Bjarnason, íþróttakennari. Handa-
vinnu stúlkna kenndi Þórey Skaftadóttir, kennari, vegna veikinda-
forfalla Guðrúnar Evþórsdóttur. Guðrún er nú á ágætum batavegi
og tekur við kennslunni aftur í haust.
Nemendur.
í skolann komu í fyrstu, auk íþróttaskólanemenda, 146 ungmenni.
Stúlkur voru 43. piltar 103. I efri deild byrjuðu nám 60 nemar, en
86 í yngri deild. Óvenju margir hurfu úr skólanum á vetrinum.
Ástæður voru margvíslegar og sumar að líkindum einstæðar.
I desembermánuði veiktist einn pilturinn, Vilhjálmur Hjörleifsson,
af lungnabólgu og dó. Vilhjálmur var um tvítugt, ekki sterkur á
heilsu. Hann var stiltur vel og góður drengur.
Tveir nemar fóru fljótlega vegna veikinda, einn sökum óyndis. Á
útmánuðum fengu þrír piltar fararleyfi til atvinnuleitar. Loks hurfu
nokkrir nemendur úr skóla í febrúarmán., vegna ágreinings við mig.
Sum blöðin héldu því fram, að ég hefði rekið þá úr skólanum, en
það er ekki rétt.
Eldri deild.
Anna Kr. Jónsdóttir, Keldunúpi, V.-Skaft. Axel Kristjónsson, Útey,
Árn. Ágúst J. Gíslason, Rvík. Árni Þ. Jónsson, Hrífunesi, V.-Skaft.
Benedikt Davíðsson, Snartarstöðum, N.-Þing. Bjarni Kr. Bjarnason,
Meðalholtum, Árn. Borghildur Brynjólfsdóttir, Gelti, Árn. Borghildur
Fétursdóttir, Oddsstöðum, N.-Þing. Davíð Atli Guðmundsson, Þing-
völlum, Árn. Ebeneser Guðjónsson, Svínaskógi, Dal. Eggert Ólafs-
son, Helgastöðum, S.-Múl. Eiríkur Guðnason, Votamýri, Árn. Friðrik
Guðmundsson, Syðra-Lóni, N.-Þing. Grímur E. Thorarensen, Sig-
12