Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 73
Viðar]
SÖNGUR í HÉRAÐSSKÓLUNUM
71
í héraðsskólunum er á þessu sviði, eins og í öðrum grein-
um, sem stund er lögð á þar, verið að leggja undirstöður
að menntun og eiga þeir nemar, sem t. d. sækja aðra
skóla, að loknu námi í héraðsskólunum, að geta byggt þar
ofan á. Aðrir nota kunnáttu þá, sem þeir hafa hlotið, til
þess að styrkja úrvals söngsveitir víðsvegar á landinu.
Svo er um fjölda marga af mínum söngnemum.
Dæmi eru þess einnig, að þeir hafa gengizt fyrir stofn-
un nýrra kóra eða stjórnað þeim, og hafa þeir á ýmsan
hátt, beint og óbeint, orðið til þess að efla og glæða söng-
líf þjóðarinnar. Allt sýnist þetta miða í skynsamlega átt.
En svo spyrjum við um alla hina, sem eins og hverfa
algjörlega út af sviði söngsins að námi loknu. Hversvegna
áttu þeir að eyða tíma við söngnám? Eg svara ekki spurn-
ingunni en spyr aftur: Mátti ekki stúlkan og pilturinn,
sem fóru heim í dalinn sinn — sveitina sína afskekktu —
að námi loknu — heim til átthaganna til þess að vinna
baki brotnu að framleiðslu landsins, máttu þau ekki líka
læra að syngja? Átti eina tækifærið, sem þeim gat hlotn-
ast á æfinni, til þess að manna og fegra rödd sína, að
ganga þeim úr greipum?
Aðsókn æskunnar í landinu til héraðsskólanna hefir
verið alveg hiklaus, þeirra er svo að velja nemendum
sínum námsefni, sem eykur lífshamingju þeirra, þekk-
ingu, manngildi og trú á heilbrigt og hófsamt líf.
Tónarnir eiga m. a. að efla meðal nema þann hugsana-
þroska, að þeir leggi ekki leiðir sínar á vegleysur, þar
sem straumar öfga og óskapnaðar slíta þær rætur, sem að
réttu lagi eiga að tengja þá við sitt eigið þjóðfélag.
í Laugarvatnsskóla hefir á undanförnum árum verið
varið níu kl.st. vikulega til sögns og einni kl.st. í hvorri
deild til bóklegra fræða þar að lútandi sérstaklega. Síð-
ustu vetur hefi ég haft fimm kóra í skólanum, hvert skóla-