Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 198
196
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. [Viðar
Handavinna og teikning var þrískipt þannig: stúlkur
9 st., piltar í e. d. 6 st., piltar í'y. d. 4 st., alls. 19---—
Söngur ................................................. 2----—
Kennslan skiptist á kennarana þannig:
Björn Guðmundsson kenndi bókmenntasögu, eðlisfræði, þjóðskipu-
lagsfræði, lestur og framsögu í b. d., reikning og málfræði í y. d.,
réttritun, ensku og dönsku í e. d. og teikningu nokkrum nemendum'
úr b. d.
Daníel Ágústínusson kenndi föðurlandssögu, niannkynssögu, dýra-
fræði og landafræði í b. d., réttritun, ensku og dönsku í y. d., -en
reikning, málfræði og bókband í e. d.
Viggó Nathanaelsson kenndi sund og leikfimi og piltum í y. d.
handavinnu.
Hólmfríður Kristinsdóttir kenndi stúlkum handavinnu.
Haukur Kristinsson kenndi söng.
Námsbækur og nám.
í vetur var farið yfir eldri bókmenntirnar og notuð Lestrarbók
Guðna Jónssonar. Mest allt óbundið mál var lesið. Hávamál vandlega
lesin og lærðar nokkrar visur. Lauslegar lesið: Þrymskviða, Völuspá,
Sonatorrek og nokkrar lausavísur, svo og Sólarljóð með skýringum
B. M. Ólsens. Málfræði Ben. Björnssonar var lesin í b. d. Var í e. d.
lögð áherzsla á setningafræðina og miklu bætt við það; sent í bókinní
er. Málfræðigreiningar voru gerðar vikulega. Ljóðaskýringar og lestr-
aræfingar voru hafðar eina stund í viku úr ísl. söngbók, Hörpu o. fl.
bókum. Framsöguæfingar á sjálfvöldu og sjálfsömdu efni voru og
vikulega. 4—5 nem. í hverri kennslustund. Stundum færri, ef tíminn
entist ekki. Ein kennslustund á viku í hvorri deild er svo ætluð til
athugasemda og leiðréttinga á heimastílum, sem gerðir voru einn á
viku.
Föðurlandssaga. Islendingasaga Arnórs Sigurjónssonar lesin út að
Gamla sáttmála.
Mnnkynssaga Þorl. H. Bjarnasonar. Fornöldin. Einnig margir fyr-
irlestrar um jarðsöguna.
Þjóðskipulagsjræði Ben. Björnssonar var lesin öll og alhniklu bætt
við munnlega.
Eðlisfræði var að mestu kennd með fyrirlestrum og tilraunum, en
þó lesið ágrip V. Snævars.
Landafræði Karls Finnbogasonar var Iesin, um Evrópu og jarðeðl-
isfræðin. Miklu bætt við kaflann um Island.
Dýrafræði Bjarna Sæmundssonar. öll bókin lesin, nema flokkar
skriðdýra og fiska.
Reikningur. Bók ólafs Daníelssonar lærð í b. d. I e. d. farið yfir