Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 218
216
FRÉTTIR AF NEMENDUM
[Viðar
ari í Reykjavík. — Þóra Guðmundsdóttir frá Læk dó á Vífilsstaöa-
hæli fyrir skömmu.
1907— 08.
Guðfinna Guðmundsdóttir frá Ytrihúsum, gift í Danmörku. — Guð-
rún Jónsdóttir frá Alviðru er dáin fyrir mörgum árum. — Hermann
Hermannsson frá Fremstuhúsum er trésmíðameistari í Reykjavik,
kvongaður. — Samúel Jósefsson frá Lambadal var formaður og út-
gerðarmaður í Rvík, kvongaður.
1908— 09.
Árni Brynjólfsson frá Brekku er bóndi á Kotnúpi, bindur bækur á
vetrum, kvongaður. — Ágústa Bjarnadóttir frá Hól er húsfrú á Suð-
ureyri í Súgandafirði. — Einar Guðmundsson frá Minnagarði býr á
Bakka í Þingeyrarhreppi, kvæntur Rósamundu ljósmóður Jónsdóttur,
er var nemandi skólans 1911—12. — Guðmundur Kristjánsson frá
Meiragarði er bæjarverkstjóri á ísafirði, kvæntur. — Guðrún Frið-
riksdóttir frá Mýrum, gift Carl Ryden forstjóra, Reykjavík. ••— Hall-
dór Jónsson frá Mýrum drukknaði ásamt fóstbróður sínum í læknis-
leit fyrir Sauðanesi 1913. — Hansína Jóhannesdóttir frá Stað er dáin.
— Guðrún Hermannsdóttir frá Fremstuhúsum gift trésmíðameistara
í Reykjavík. — Hjaltlína Guðjónsdóttir frá Brekku er .prófastsfrú að
Núpi. — Jóhannes Davíðsson frá Álfadal er bóndi. og.trúnaðarmaður
Bf. Isl. í Neðri-Hjarðardal. — Kristján Guðmundsson frá Villingadal
er kaupmaður í Reykjavík, kvæntur. — Sigmundur Jónsson frá Felli
býr með foreldrum sínum að Meiragarði. — örnólfur Valdemarsson
frá Suðureyri, kaupmaður og útgerðarmaður þar, formaður skóla-
nefndar Núpsskóla, kvæntur Hildi Þorvarðsdóttur, prests að Stað. —
1909— 10.
Andrés Kristjánsson frá Meðaldal, býr á föðurleifð sinni, kvæntur.
— Björn Jóhannsson frá Meðaldal, kennari í Hafnarfirði, kvæntur
Elísabetu Einarsdóttur, nemanda skólans 1915—16. — Elísabet Krist-
jánsdóttir frá Meðaldal, gift Jónasi Halldórssyni forstjóra í Reykja-
vík, nemanda skólans sama ár. — Friðrik Benónýsson frá Haukadal
var skipstjóri, drukknaði. — Gestur Gestsson frá Hjarðardal, skóla-
stjóri i Flatey, kvæntur. — Guðbjörg ólafsdóttir frá Haukadal er
gift og býr á föðurleifð sinni. — Guðjón Sigurðsson, vélmejstari í
Reykjavík. — Guðmundur Guðmundsson frá Kirkjubóli, kennari og
oddviti í Keflavík, kvæntur. — Guðrún Einarsdóttir frá Læk, húsfrú
á Suðurlandi. — Jóna Jónsdóttir frá Veðrará var tvígift, dáin. —
Kristján Davíðsson frá Álfadal, bóndi og hreppsnefndarmaður í
Neðri-Hjarðardal, kvæntur, — Eeó Garðar Böðvarsson frá Hvamjni,