Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 96
94 Á SPRENGISANDI [Viðar
leið, við móti sólskini Suðurlands, þeir móti hinni norð-
lenzku þoku og súld. í þetta sinn voru veðraskilin um
Fjórðungsöldu. Nú skiptast leiðir. Aðalleiðin, sú sem
vörðuð er, liggur niður að Sóleyjarhöfða. En við beygðum
af henni niður að Þjórsá, sem hér fellur í ofurlitlu gili,
og er þegar orðin nokkurt vatnsfall og kolmórauð af jök-
ulkorgi. Meðfram ánni eru ofurlitlar hagateygjur með
hvann-stóði. Stigum við af baki þegar vestur yfir ána
kom og áðum litla stund. En hestarnir voru hvikulir, svo
við héldum brátt af stað. Tókum við nú þeysireið mikla
suðvestur eftir rennisléttum söndunum og stefndum á
Arnarfell hið mikla. Riðum við margar jökulkvíslar, sem
allar falla suðaustur í Þjórsá; engin þeirra var vatnsmikil,
sumar í kvið, sumar minni og í fæstum þeirra sandbleyta
til muna. En ekki kom ég tölu á kvíslarnar.
Arnarfell hið mikla er hátt og forkunnarfagurt fjall
sunnan og austan í Hofsjökli. Fellur sinn skriðjökullinn
hvoru megin við fjallið, alveg niður á sanda. Norðan og
austan við sjálft fjallið fellur allbreiður jökulfoss niður
og skilur annað lægra autt fjall frá. Til suðvesturs gengur
annar auður fjallrani, og eru þetta eins og tveir vængir á
aðalfjallinu. Framhlíðin er mjög brött og snýr móti suð-
austri. Er gróður langt upp eftir henni. Fjallagrös kváðu
vera afar mikil í Arnarfelli. Ingjaldur Jónsson, sem bjó á
Mýri í Bárðardal 1840—1865, fór þangað til grasa, og var
hestburðurinn fljóttekinn, þegar komið var á staðinn.
Fyrir fám árum tapaðist hestur frá Veisu í Fnjóskadal.
Hann var borgfirzkur. Slóðir eftir hann sáust á Bleiks-
mýrardal, og' um haustið sáu Bárðdælingar hestsslóð suð-
ur á söndum, sem ekki gat verið eftir ferðamannahesta.
Haustið eftir fannst hestur þessi í Arnarfelli. Hafði hann
gengið af á þessum slóðum um veturinn. Komst hann nú
eftir þessi æfintýri heim til átthaganna. Allmikill kriki er
inn í jökulröndina inn að Arnarfelli. Fórum við ekki
þangað inn, heldur riðum fyrir minni krikans og svo suð-
vestur með jökulöldunum, sem alltaf fylgja skriðjökul-