Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 8
6
Á FRAMTÍÐARVEGI
[Viðar
{ „Viðar“ skrifa, temji sér þá dyggð, að vera stuttorðir.
Þá er og sjálfsagt að leggja áherzlu á, að prýða ritið
myndum. Fyrirhugað er, að í framtíðinni birtist greinar
um brautryðjendur alþýðuskólahreyfingarinnar.
Það hefir orðið til tíðinda í sumar, að Reykjanesskóli
viö ísafjarðardjúp, sem lögum samkvœmt hefir verið tek-
inn í tölu héraðsskóla, verður nú þátttakandi í útgáfu
„Viðars“.
4.—5. júlí s. I. var haldið mót Eiðaskólanemenda. Þar
var ákveðið, að Eiðaskóli skyldi í framtíðinni taka þátt
í útgáfunni. En vegna þess, hve seint þessi ákvörðun var
tekin, getur enginn þáttur frá þeim skóla birzt í ritinu að
þessu sinni. Stuðningur Eiðamanna er því aðeins fólginn
í áskrifendagjöldum á þessu ári. Hinsvegar mun Eiðaskóli
verða einn aðilinn í útgáfu nœsta árgangs.
Af fréttum, sem héraðsskólana varða, er fátt að segja.
Þó má það telja frásagnarvert, að kennarar þeirra, ásamt
gagnfrœðaskólakennurum, kusu fulltrúa í nefnd þá, er sér
um ríkisútgáfu skólabóka. Kosningu hlaut Jónas Jónsson
frá Hriflu, fyrrv. dómsmálaráðherra. Má vœnta góðs af
starfi þessarar nefndar.
2—11. ágúst í sumar var haldið mót norrænna lýðhá-
skólakennara í Hundorp í Guðbrandsdal. Mætti þar Guð-
mundur Gíslason, kennari á Laugarvatni, af hálfu ís-
lenzkra kennara.
Um hag og framtíð héraðs- og alþýðuskólanna skal ekki
fjölyrt hér. Þess má þó geta, að varla hefir öðru sinni
blásið byrlegar fyrir þeim en einmitt nú. Aðsóknin þverr-
ar eigi, nema síður sé. Ymsar framkvæmdir og umbætur
hafa verið gerðar á síðasta ári og einn nýr héraðsskóli
hefir bœtzt í hópinn. Margt bendir á aukinn áhuga og