Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 99
Viðar] Á SPRENGISANDI 97
ur með henni að norðan, fram yfir melöldur allmiklar.
Þegar við komum fram á brúnir þeirra, blasti við allt há-
lendið milli Hofsjökuls og Langjökuls. Langt í suðvestri
glampaði á Hvítárvatn, en handan við það bar Jarlhettur
yfir suðausturhorn Langjökuls. Norðan í Kerlingarfjöll
vestan til ganga Hveradalir og sáum við þar reyki mikla,
þótt ekki sæi langt inn í dalina. Þar er eitthvert mesta
brennisteinshverasvæði íslands. Jökulkvísl fellur nú all-
bratt fram af hæðum þessum, og myndar á einum stað
snotran foss. Þegar kemur niður á jafnsléttu, beygir hún
til suðurs og fellur í Hvítá nokkru neðan við Hvítárvatn.
Við beygðum nú til suðvesturs og stefndum á Hvítárvatn.
Svartá heitir bergvatnsá lítil, sem er á þeirri leið. Á
henni sáum við svanahjón með 4 unga. Að sæluhúsinu í
Hvítárnesi komum við kl. hálf fimm, og höfðurn því ekki
verið nema 11 tíma úr Nauthaga.
Hvítárnes er mikið, marflatt mýrarflæmi austan við
Hvítárvatn og falla um það nokkrir kílar, en ekki getur
það nes kallast. Sæluhúsið stendur austan við mýri þessa,
en svo lágt, að lítið sér til vatnsins yfir flatneskjuna, sem
á milli er.
Útsýni er þó hið fegursta frá húsinu. Beint á móti rís
Skriðufell þverhnípt upp frá vatninu og beggja vegna
falla skriðjölkarnir fram í vatnið. Blasa jökulhamrarnir
margra faðma háir vel við frá húsinu, og yfi mýrina ber
fjalljakana, sem eru á reki víðsvegar um vatnið, eða
standa á grunni nærri löndunum. Er þetta hvort tveggja
mjög fagurt og sérkennilegt. Stundum hlaupa kindur á
jökli í Skriðufell, og lenda þar í sveltu, því hagar eru þar
sama og engir. Yfir syðri skriðjökulinn ber Jarlhettur,
þyrpingu af hvössum, háum tindum, afar einkennilegum,
einkum héðan séð, þar sem þeir sýnast standa dimmbláir
upp úr drifhvítri jökulbreiðunni. Norðaustan við vatnið,
norðvestur frá húsinu, eru lágir hálsar með gróðri. Það
eru Hrefnubúðir. Þar á bak við er Karlsdráttur. Þar inn
frá falla Fúlakvísl og Fróða í Hvítárvatn. Lengra norður
7