Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 112
i 10 FRÁ ÚTLÖNDUM [Viðar
Shorewood Opportunity School.
Shorewood er útborg Milwaukee, sem er stærsta borgin
í Wisconsin í Bandaríkjunum, með íbúatölu líkt og Kaup-
mannahöfn. Shorewood stendur á bökkum Michigan-
vatnsins og er útsýni hið fegursta.
Hreint loft og heillandi náttúra umhverfisins hefir gert
það að verkum, að bæjarbúar hafa leitazt við að láta börn-
um sínum í té sem bezta skólamenntun. Þau sækja daglega
kennslu, á aldrinum frá 4 til 18 ára, til velmenntaðra kenn-
ara og kennslukvenna. Húsakynnin eru eftir nýjustu tízku.
Þetta hefir aukið aðdráttarafl Shorewood’s, svo að íbúatala
bæjarins hefir margfaldast á nokkrum árum.
I efri bekkjum skólans, þar sem börnin dvelja frá 12 til
18 ára aldurs, er mest til alls vandað: Listir og vísindi,
hannyrðir og smíðar, leikfimi og sund — allt hefir sín sér-
stöku húsakynni.
Það var þessi skóli, sem vakti hugmyndina um, að gefa
fullorðnu fólki í bænum aðstöðu til framhaldsmenntunar.
Nefnd var skipuð til að gera tillögur. Samkvæmt þeim var
í september 1922 stofnaður kvöldskóli í ýmsum deildum
fyrir allskonar heimilisiðnað, tónlist og leikfimi.
Þetta var byrjun að „The Opportunity School“ — skól-
anum, sem átti að fullkomna hvern og einn í starfi sínu
eða gefa hverjum, sem þess óskaði, tækifæri til að helga
sig áhugamálum í tómstundum sínum.
Skólinn hefir blómgast með feikna hraða. Nú sækja
hann um 3000 nemendur á öllum aldri. Starf hans er marg-
þætt: Fyrirlestrar eru fluttir og rökræður þreyttar um fé-
lags- og Stjórnmál, heilsu- og uppeldisfræði, listir og hús-
byggingar. Kennd er enska í mörgum flokkum. Sérstök
námskeið eru haldin til framburðar- og málfágunar, rædd-
ar eru nýjustu bókmenntir, útlend tungumál lærð, stærð-
fræði o. m. fl.
Haldnar eru sýningar, er sanna listræni í vinnubrögðum
og hin mestu afköst. En það, sem meira er um vert en