Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 176
174
STARFSSKRÁ VÖKUMANNA
[Viðar
3. gr. — Vökumenn telja nauðsynlegt til einstaklingsþroska og
starfshæfni að kynnast rækilega landinu og þjóðinni og lífshöguni
hennar á hverjum tíma, sögu hennar og bókmenntum. Vökumenn
leggja sérstaka áherzlu á að vanda sem mest meðferð íslenzkrar
tungu í ræðu og riti. Að þessu skal fyrst og fremst unnið með
fundahöldum og fræðslustarfsemi innan deildanna. I þessu sambandi
vilja Vökumenn styðja að ferðalögum æskufólks um landið.
4. gr. — Vökumenn stefna að algjörðu bindindi á áfengi og tóbak
og styðja alla slíka viðleitni meðal æskumanna í landinu. Vökumað-
ur, sem gerir sig sekan um ölvun á almanna færi, skal rækur úr fé-
lagssamtökum Vökumanna.
5. gr. — Vökumenn vilja beita sér fyrir því, að sett séu takmörk'
fyrir launagreiðslum í samræmi við þjóðarhag. Þeir vilja einnig
vinna á móti því, að gerðar séu kröfur um styrk til hins opinbera,
án þess að hlutaðeigendur sjálfir sýni fyllstu viðleitni til sjálfsbjargar.
6. gr. — Vökumenn vinna að því að koma upp sérstakri fræðslu-
slarfsemi innan deildanna og sambandsins í heild, um félags- og at-
vinnumál og undirbúa sig þannig til þess að verða færari um að
vernda lýðræðið og þingræðið í landinu og vinna á móti ofbeldi í
þjóðfélagsmálum. Ennfremur vilja Vökumenn beita sér fyrir þvi, að
gefin verði út alþýðleg handbók um gildi lýðræðisins.
7. gr. — Vökumenn vilja leitast við að vekja áhuga fyrir og vinna
að myndun nýrra býla í landinu.
8. gr. — Vökumenn vilja stuðla að því að koma upp sameiginleg-
um skólabúningi, smekklegum og léttum, úr íslenzku efni.
9. gr. — Vökumenn vilja beita sér fyrir því, að samin verði og
gefin út handbók um hreinlæti og háttprýði.
10. gr. — Vökumenn skipta helzt við samvinnuverzlanir og íslenzk
iðnfyrirtæki.
11. gr. — Vökumenn vilja koma á bréfaskiptum milli ungra manna
heima og erlendis. Og ennfremur vilja Vökumenn koma á manna-
skiptum milli Vökumanna og hliðstæðra erlendra æskulýðsfélaga. Þá
vilja þeir og stuðla að nemendaskiptum milli íslenzkra héraðsskóla
og unglingaskóla og erlendra ungmennaskóla, t. d. norrænu lýðhá-
skólanna.
12. gr. — Vökumaður, sem er nemandi í skóla, skuldbindur sig til
að hlýða í öllu þeim reglum, sem honum eru settar af skóla hans og
hann hefir gengizt undir — og hvetja aðra til að gera hið sama.
13. gr. — Öll félagsleg starfsemi Vökumanna á að beinast að því
að þroska þá til að verða atorkusamir liðsmenn í hverskonar um-
bótafélagsskap, sem þeir taka þátt í, svo sem bindindisfélögum, ung-
rnennafélögum, samvinnufélögum og við hver þau störf önnur, sem
þeir taka að sér.