Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 217
Viðar]
FRÉTTIR AF NEMENDUM
215
son var i smiðadeild Laugaskóla sl. vetur, en er heima í sumar á
Hellu. Stefán Bjarnason var í vetur heima á Siglufirði. Steingrím-
ur Benediktsson var á Móeiðarhvoli í vetur, en kom norður í vor.
Svafar Tryggvason var í Verzlunarskólanum í vetur. Þorbjörg
Bergmann er heima á Giljá. Þorgeir Pálsson stundaði nám í
Hvanneyrarskóla í vetur, en er heima í sumar. Þórhalla Björnsdóttir
var í vetur og vor á Fosshóli. Þórir Benediktsson var í smíðadeild
Laugaskóla sl. vetur og umsjónarmaður skólans.
Annáll Núpsskólanemenda.
Það var í ráði í fyrra að láta skrá um nemendur skólans frá fyrstu
fylgja 30 ára minningunni, en það fórst fyrir af tveimur ástæðum:
Núpsskóli hefði þá orðið of rúmfrekur í Viðari og upplýsingar skorti
mjög um marga eldri nemendur skólans.
Enda þótt þær upplýsingar séu enn ekki allar fyrir hendi, hefst
hér Núpsmannaannáll og eru hlutaðeigandi nemendur beðnir afsök-
unar á skekkjum, sem verða kunna vegna ókunnugleika.
1906—1907.
Bjarni fva,rsson frá Kotnúpi, bóndi í Álfadal, kvongaður Jónu Guð-
mundsdóttur, er var nemandi skólans 1912—13. — Dagbjartur Jöns-
son frá Felli, verkamaður í Reykjavík. — Einar Guðmundsson frá
Klukkulandi. Dáinn. — Gísli Gilsson frá Arnarnesi. Nú óðalsbóndi
þar. Kvongaður Sigrúnu Guðlaugsdóttur, systur fyrrv. skólastjóra og
ráðskonu skólans um skeið. — Guðný Gilsdóttir frá Arnarnesi, gift
Guðjóni vélmeistara Sigurðssyni, nemanda skólans 1907—08. — Guð-
rún Gísladóttir frá Hjarðardal, gift Guðmundi Hermannssyni bónda
og kennara í Hjarðardal. — Guðrún fvarsdóttir frá Kotnúpi. Dáin.
— Halldóra Gestsdóttir frá Hjarðardal, gift Jóni Jónssyni bónda á
Másstöðum í Vatnsdal. — Hákon Jónsson frá Felli, stundar trésmíða-
vinnu við Reykjavíkurhöfn, kvongaður. — Ingimar Jóhannesson frá
Garði, skólastjóri við heimavistarskólann að Flúðum í Árnessýslu,
kvongaður. — Jens Jónsson frá Ytrihúsum. Býr í Minna-Garði.
Ekkjumaður. — Jóhann Benediktsson frá Bakka er verkstjóri í
Reykjavík. — Jón Mósesson frá Arnarnesi er málarameistari í
Reykjavík, kvongaður. — Jón Sigurðsson frá Gerðhemrum, véla-
meistari í Noregi. Kvongaður norskri konu. — María Mósesdóttir
frá Arnarnesi, fór til Ameríku, hjúkrunarkona, gerðist listmálari þar.
— Ragnheiður Kristjánsdóttir frá Meira-Garði. Húsfrú í Reykjavík.
— Sakarías B. jónsson frá Alviðru, skipstjóri og útgerðarmaður frá
Jsafirði, — Torfj Hermannsson frá Fremstuhúsum er trésmíðameist-