Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 202
200
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. [Viðar
hannesdóftir, Borgarnes, Mýr. 54. Steingrímur Þórisson, Reykholt,
Borg. 55. Þorgrímur Einarsson, Hæll, Borg. 56. Þorvaldur Friðriks-
son, Borgarnes, Mýr. 57. Þórður Kárason, Hagi, Snæf.
Framhaldsdeild. 1. Guðjón Þorgilsson, Hamar, N.-ís. 2. Magnús
Gestsson, Ormsstaðir, Dal. 3. Ólafur Pálsson, Sperðlahlíð, Barð.
Nám og kennsla. Y. d. var tvískipt (A- og B-ílokkur) í öllum
námsgreinum, nema í íslendingasögu, mannkynssögu, grasafræði og
félagsfræði, í þeim greinum voru sameiginlegir tímar fyrir báða
flokka. í erlendum málum var riemendum skipt í flokka eftir kunn-
áttustigi. Voru flokkarnir 3 í dönsku og í ensku, en 1 í þýzku. — I
smíðum og bókbandi varð að skipta nemum í 5 manna flokka, vegna
takmarkaðs rúms.
Kennarar og skipting kennslunnar. Kristinn Stefánsson kenndi ís-
Ienzku og bókmenntasögu í e. d., A-flokki og í frhd.; landafræði í
B-flokki og þýzku, 24 st. á viku. Anna Bjarnadóttir kenndi ensku í
öllum flokkum og dönsku í 3. flokki, 13 st. Bjarni Bjarnason kenndi
söng, 4 st. Síra Einar Guðnason kenndi íslendingasögu og mannkyns-
sögu í b. d., íslenzku í B-flokki og dönsku i 2. flokki, 17 st. Halldóra
Sigurðardóttir kenndi stúlkum hannyrðir, 4% st. Magnús Jakobsson
kenndi smíðar, 22 st. Hann sá auk þess um viðgerðir á öllu, sem laga
þurfti. — Þorgils Guðmundsson kenndi fimleika og sund í b. d.,
heilsufræði, dýrafræði og skrift í y. d. og dönsku í 1. flokki, 29 st.
Þórir Steinþórsson kenndi reikning og félagsfræði í b. d., eðlisfræði
og bókfærslu í e. d., grasafræði í y. d., Iandafræði í e. d. og A-flokki
og stærðfræði í frhd., 30 st. Bjarni Árnason kenndi bókband um
þriggja mánaða skeið, 24 st. á viku. Kennararnir, síra Einar, Þor-
gils og Þórir, sáu ennfremur til skiptis um útivist nemenda og höfðu
eftirlit með sameiginlegum lestrartímum nemenda sinn daginn hver.
Námsgreinar og námsbækur. — Islenzka. Yngri deild. Lestrarbók
Nordals, bls. 141—371; nokkrum köflum sleppt. Málfræði Benedikts
Björnssonar tvílesin. Tímastíll, stafsetningaræfingar og endursagnir,
vikulega; auk þess að jafnaði 2 heimaritgerðir á viku. Eldri deild.
Lestrarbók Guðna Jónssonar. Lesnar um 130 bls. og auk þess Þryms-
kviða, úr Helgakviðu Hundingsbana II., Hávamál (77 erindi), Höfuð-
lausn og Sonatorrek. Málfræði Benedikts Björnssonar endurlesin, Setn-
ingafræði Freysteins Gunnarssonar, en þó miklu sleppt. Einn stíll á
viku. Kennarinn fór með frásögn yfir bókmenntasöguna frá elztu
tímum og fram undir siðaskipti. Ritreglur Freysteins voru notaðar
við kennsluna í báðum deildum. Nemendur beggja deilda fluttu er-
indi um bókmenntaleg efni. Framhaldsdeild. Farið yfir mestalla bók
Guðna, kvæðin tvilesin. Málfræði Smára út að bls. 121. Setningafræði
Freysteins Iesin öll.