Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 222
220
FRÉTTIR AF NEMENDUM
[Viðar
Bernharðssou frá Hrauni, stofnaði nýbýlið Ástún á Ingjatdssandi,
kvæntur. — Hergeir Elíasson frá Haukadal, skipstjóri í Reykjavik.
— Sigríður Kjartansdóttir frá Hnífsdal. -— Elín Jóhannsdóttir frá
Ormskoti, Eyjafjallahr. Fór til Ameríku, stundaði háskólanám þar.
— Pálína Jónsdóttir frá Hnífsdal. — Ingólfur Stígsson frá Grund á
Jökuldal, dáinn. — Kristín R. Kristjánsdóttir frá Eyrarhúsum er gift
í Reykjavík. — Guðríður Sveinsdóttir frá Þingeyri, dáin. — Jarð-
þrúður Bernharðsdóttir frá Keldnakoti í Árnessýslu er húsfrú þar
syðra. — Valdemar Össurarson frá Kollsvík var kennari hér við
skólann frá 1926—30. Nú skólastjóri í Sandgerði. Kvæntur. — Ragn-
ar Guðmundsson frá Meðaldal er bóndi og hreppsnefndarmaður í
Lokinhömrum, kvæntur.
1917—18.
Aðalbjörn Pétursson frá Hafnardal er gullsmiður á Siglufirði,
kvæntur. — Ágúst Jónsson frá Granda, sjómaður á Þingeyri, kvænt-
ur. — Einar Skúlason frá Isafirði, kvæntur í Reykjavík. — Guðfinna
Arnfinnsdóttir frá Lambadal, húsfrú á Flateyri. — Guðmundur Gils-
son frá Arnarnesi, hneigðist mjög að sönglist, en var heilsutæpur og
er nú dáinn. — Guðmundur Jónsson frá Gemlufalli, dáinn. — Helgi
Skúlason frá ísafirði, dáinn. — Jóna Magnúsína Þóroddsdóttir frá
Alviðru, húsfrú á Flateyri. •— Ölafur Gíslason frá Núpi, drukknaði á
togaranum Leifi heppna. — Þórdís Guðmundsdóttir' frá Botni í
Tálknafirði.
1918—19 starfaði skólinn ekki, vegna dýrtíðar og annara erfið-
leika.
1919—20.
Anna V. Rósinkransdóttir frá Tröð, giftist Jens Hólmgeirssyni, nú
bæjarstjóra á ísafirði og skólanefndarmanni Núpsskólans. Dó
skömmu síðar. — Bjarni J. Jónsson frá Valshamri í A.-Barðast,r.s.
drukknaði ungur. — Davíð J. Karlsson Löve frá ísafirði fór í sigl-
ingar. — Eyjólfur S. Þorvaldsson frá Þingeyri er stýrimaður á skip-
um Eimskipafélagsins. — Finnur Karl Jónsson frá Purkey vann að
skipasmíði á Þingeyri, fluttist svo suður til Reykjavikur. — Grímur
Grímsson frá Valshamri er bóndi í Geiradalnum. — Guðjón Guð-
mundsson frá Villingadal hefir búið á Villingadal, giftur Katrínu
Jörundsdóttur, starfsstúlku skólans 1922—1923. Rann skriða á tún
býlis þeirra og eyðilagði þriðjung þess og tveim árum síðar brann
bærinn í stórhríðar-norðanbyl og var konan heima með börnin og einn
ungling, bróður sinn. Þau eru flutt suður í Akraneshrepp. — Guð-
rún Jónsdóttir frá Kirkjubóli í Valþjófsdal er húsfrú í Hafnarfirði.
— Hannes Arnórsson frá Tungu, — Guðmundur Jensson frá Veðrará