Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 19
Viðar]
VÍSINDI OG HAMINGJA
1?
ing réttlæti ekkert nema nokkra gætni í upptöku nýrra
lifnaðarhátta. Fötin eru til að mynda algjörlega á móti
náttúrunni, og við þau bætist önnur algerlega ónáttúrleg
athöfn: þvotturinn, ef þau eiga ekki að valda sýkingu. En
þetta tvennt gerir menningarmanninn hraustari en villi-
manninn, sem kemur sér hjá hvoru tveggja.
Það mætti segja margt fleira um „náttúruna“ í sam-
bandi við mannlegar þarfir. Að neyða mann, konu eða
barn til að lifa lífi, sem stríðir gegn dýpstu hvötum þeirra,
er bæði grimmilegt og hættulegt. Að þessu leyti verður
að gæta nokkurrar varúðar, er hvetja á mann til þess að
lifa lífinu í samræmi við náttúruna. Ekkert er ónáttúregra
en neðanjarðarjárnbraut, en eðli barnsins er á engan hát't
misboðið, þótt það ferðist með henni, fjarri því, því að
fiestum börnum þykir það mjög skemmtilegt. Tækni, sem
þægir þörfum mannanna, er yfirleitt góð að öðru jöfnu.
En það er ekki hægt að mæla bót þeim lifnaðarháttum,
sem eru ónáttúrlegir í þeim skilningi, að þeim sé þröngv-
að upp á menn af yfirvöldum eða efnalegri nauðsyn. Slík-
ir lifnaðarhættir eru vafalaust að nokkru leyti nauðsyn-
legir að svo stöddu: ferðalög um hafið yrðu erfið, ef engir
kyndarar væru á skipunum. En slík nauðsyn er ill, og
menn ættu að leita allra ráða til þess að forðast hana. —
Það er ás'tæðulaust að kvarta undan hæfilegri vinnu. í níu
tilfellum af tíu gerir hún manninn hamingjusamari en
fullkomið iðjuleysi. En sú tegund vinnu og vinnumagn,
sem flest fólk hefir nú, er þungt böl: einkum eru æfilöng
tengsl við sömu, fábreyttu vinnuna ill. Lífið ætti ekki að
falla í fastmótuðum farvegi. Það ætti að gefa tilhneiging-
um okkar lausan tauminn, þegar þær eru engum til skaða
eða skemmdar. Það á að bera virðingu fyrir manneðlinu,
af því að tilhneigingar okkar eru sá efniviður, sem ham-
ingja okkar er gerð úr. Það er gagnslaust að gefa mönn-
um eitthvað, sem álitið er gott, við verðum að gefa þeim
eitthvað, sem þeir óska og þrá, ef við ætlum að auka á
hamingju þeirra. Ef til vill læra vísindin með tímanum
2