Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 183
Viðar] ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M.
181
Þannig voru kennd helztu atriði efnafræðinnar, og nokkur fræðsla
veitt um þýðingu fimleika og íþrótta og skynsamlegra iðkana þeirra.
Grasafrasði. Lesnar Plönturnar eftir St. Stefánsson. Haldnir fyrir-
lestrar um nytsemi jurtaríkisins. Síðast taldar þrjár námsgreinar eru
kenndar nær því eingöngu í y. d.
Eðlisfræði. Aðeins kennd í e. d. Kennt var í fyrirlestrum, 1 st. á
viku. Stuðzt við kennslubók í »Fysik« eftir 0. G. Gjössten og Natu-
ren og dens Kræfter eftir H. O. G. Ellingsen. Tilraunir sýndar, þeg-
ar því varð við komið.
Reikningur. Notuð var Reikningsbók dr. Ölafs Daníelssonar. Einn-
ig stuðzt við ýmsar aðrar reikningsbækur. Nemendur neðri deildar
komust út að jöfnum, þeir beztu, í efri deild ut að »Ýms dæmi«, sum-
ir skemmra.
Bókfeersla. Aðeins kennd í e. d. Kennd var bæði einföld og tvöföld
bókfærsla.
Erlend tungumál. Nemöndum í dönsku og ensku var skipt í þrjá
flokka. Þýzkuflokkur var einn og sænskufiokkur einn.
Danska. Lesin var kennslubók eftir Jón Ófeigsson og Jóhannes Sig-
fússon. Byrjendur (III. fl.) lásu allt 1. h. og allmikið í 2. h. II. fl.
, las 2. og 3. h. I. fl. Ias 3. h. og talsvert í kennslubók Jóns Ófeigsson-
ar og Sig. Sigtryggssonar.
Enska. Lesin enskunámsbók Geirs Zoega. III. fl. (byrjendur) lásu
50 kafla, II. fl. las út á bls. 200, I. fl. lauk við bókina og byrjaði á
Engelsk Begynderbog II. eftir O. Jespersen og Chr. Sarauw.
Einn stíll vikulega hjá hverjum flokki í erlendu málunum.
Þýzka. Kennslubók eftir J. Ófeigsson (3. útg.) lesin öll, endursagð-
ar ýmsar sögur, tal- og ritæfingar iðkaðar.
samt öðrum bókum.
Sænska. Lesin kennslubók P. Guðmundssonar og G. Lejströms
ásamt ýmsum öðrurn bókum.
Söngur. Sjá ritgjörð eftir Þórð Kristleifsson á öðrum stað í ritinu.
Handavinna. Kennt var saumar, trésmíði og bókband. Stúlkum var
veitt nokkur tilsögn í kjólasaumum, útsaumi og hekli, en mest stund
var lögð á viðgerðir og viðhald fatnaðar.
Vandasömustu hlutirnir, sem piltarnir smíðuðu, voru tvöfaldur fata-
skápur, skrifborð, skíði, stólar og koffort geirnegld.
f bókbandi er kennt að binda í skinn og djúpfals en ekki að gylla.
Bókasafnið hefir aukizt á þessu ári um nálega 200 bindi. Mest af
þessum bókum hefir verið keypt. Jón Þórðarson prentari færði safn-
inu 10 íslenzkar bækur að gjöf. Nemendur gjalda 3 kr. hver til bóka-
gafnsins. Úr skólasjóði er varið kr. 200.00 til bókakaupa.