Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 196
194 ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. [Viðar
uðum tillögum samlagsmanna hélt það þó uppi eigi órífari skilum en
áður.
Allir reglulegir nemendur og meiri hluti kennaraliðs var í mötu-
neyti skólans. Dagfæðiskostnaður varð kr. 1.30 fyrir karla og kr.
1.07 fyrir konur, hreinlætisvörur og ljós í íbúðum meðreiknað. Nem-
endur vinna eigi að eldhússtörfum.
Umbœtur.
Töluvert var lagfært innanhúss, einkum málað all-mikið. I kennslu-
stofu e. d. komu ný borð og sæti, er nemendur höfðu smíðað í fyrra.
Voru borðin máluð ljós, svo að misfellur í umgengni segðu fljótt til
sín. En lítt kom til þess, því að vel var farið með þetta af nemendum.
í vetur fékkst á sama hátt húsbúnaður í aðra kennslustofu y. d. og
nokkuð fleira húsgagna. Til kennslunnar var bætt við smíðaáhöldum,
og af íþróttatækjum hafði Þorgeir Sveinbjarnarson talsvert heirn
með sér á sinn kostnað, auk þess sem ofurlítið var keypt fyrir fram-
lög fyrra árs nemenda í því skyni. Önnur aukning á kennsluáhöldum
er ekki teljandi. Aukning á bókasafninu verður væntanlega lik og
undanfarið (bókakaupum fyrir handbært fé enn eigi lokið). — Úti
við hefir lítið verið lagfært. Við tjörnina hafa þó í vor verið gróður-
settar um 90 birkihríslur og von í allmörgum plöntum í skógræktar-
girðinguna. — Bíður enn all-mikið verkefni við umbætur utanhúss.
Sumarrekstur, búskapur.
Páll H. Jónsson kennari hafði á leigu land skólans og rak nokkurn
búskap á því. Þá rak hann gistihúss-starfsemi í skólanum sl. sumar
og gerir það aftur nú í sumar. Eins og umferð hefir verið, verðifr
illa komizt hjá slíkri starfsemi í einhverri mynd, þó að hún sé tæp-
ast gróðavænleg enn sem komið er.
í þróttanámskeið.
íþróttanámskeið var haldið í vor eftir skólaslit, dagana 16. apríl
til 6. maí. Kennt var leikfimi, sund, frjálsar íþróttir, knattleikir og
»hjálp í viðlögum«. Nokkrir fyrirlestrar voru haldnir, þ. á. m. um
kornrækt. Kennsla var 7—8 st. á dag. Kennarar voru Þorgeir Svein-
bjarnarson og Erlingur Davíðsson. Þátttakendur voru 21, og þar að
auki tóku 18 þátt í »hjálp í viðlögum« nokkurn hluta námskeiðsins.
(Skv. skýrslu Þorgeirs Sveinbjarnarsonar.)
Skólaslit.
Skólanum var slitið af skólastjóra með nokkrum ávarpsorðum 12.
apríl. Konráð Erlendsson hélt ræðu.
Laugaskóla, 1. júní 1937.
Leifur Ásgeirsson.