Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 116
j 14
FUNDARGERÐ
[Viðar
IV. Kennslubækur skólanna. — Málið var lítið eitt rætt og þeir
Guðmundur Ólafsson, sr. Jón Guðnason og Þórir Steinþórsson kjörn-
ir til að athuga málið. — Þá varð fundarhlé, og er fundur hófst aft-
ur, bættist í hópinn frá Reykjaskóla í Hrútafirði sr. Jón Guðnason.
Voru þá mættir 13 af 25 félagsmönnum.
V. Reikningar félagsins voru lagðir fram. Tekjuafgangur var kr.
399.20. Höfðu reikningarnir verið athugaðir af Bergsteini Kristjóns-
syni og Þorgils Guðmundssyni, er til þess voru kjörnir. Reikningarn-
ir voru samþykktir athugasemdalaust.
VI. Afstaða skölanna til stjórnmálanna. — Rætt var um, hvernig
snúast skyldi við byltinga- og öfgamönnum í stjórnmálum, er þeir
beiddust inngöngu í héraðsskólana eða beittu áróðri í þeim, enn-
fremur hvernig haga skyldi kennslu í sumum greinum þjóðfélags-
fræðinnar, sem jafnan hljóta að snerta hinar ólíku stjórnmálaskoð-
anir.
VII. Vökumannahreyfingin og héraðsskólarnir. •— Guðmundur
Gíslason skýrði frá starfi og stefnuskrá Vökumanna. Skólastjórar
létu í Ijósi sínar skoðanir um viðhorf skóla sinna til þessa félags-
skapar og sögðu sögur þessa máls þar. Út af þessu urðu töluverðar
umræður.
VIII. Kom fram og var samþykkt svohljóðandi yfirlýsing:
»Fundur héraðsskólakennara telur rétt að nemendur, *sem hafa ekki
fengið skólavist í einhverjum héraðsskóla af öðrum ástæðum en rúm-
leysi, eða hefir verið vikið burt fyrir brot á reglum, sem skólunum
eru sameiginlegar, verði ekki teknir í hina skólana, enda tilkynni
skólastjórar hverjir öðrum er slíkt kemur fyrir og tilgreini ástæður.«
IX. Þórður Kristleifsson, söngkennari, flutti erindi um söngkennslu
í héraðsskólunum. ■— Að því loknu var fundi frestað til næsta dags.
Er fitndur hófst næsta dag, mánudaginn 28. júní, var fyrst tekið
fyrir:
X. Lagaauki. — Formaður óskaði þess að gefnu tilefni, að bætt
væri inn í lög félagsins svohljóðandi ákvæði:
»í þeim málum, er snerta sameiginlega félag héraðs- og alþýðu-
skólakennara og félag gagnfræðaskólakennara, er stjórn félagsins
heimilt að gera nauðsynlegar ákvarðanir fyrir félagsins hönd án þess
fundarsamþykkt liggi fyrir.«
Þessi tillaga var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum og
verður 6. grein félagslaganna.
XI. Nemendaskipti. — Samþykkt var svohljóðandi tillaga:
»Fundur héraðs- og alþýðuskólakennara að Laugarvatni vorið 1937