Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 192
190 ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. [Viðar
Hrefna Kolbeinsdóttir kenndi ensku í 2 flokkum og útsaum í y. d.
og e. d.
Erlingur Davíðsson kenndi sund í e. d. og lítið eitt í y. d., svo og
námsmeyjum Húsmæðraskólans sérstaklega.
Bergþóra Davíðsdóttir kenndi sauma í y. d. og e. d.
Námsgreinar, kennslustundajjöldi, námsbækur.
Stundatölurnar tákna jafnaðarlega vikukennslu í greininni, nema
annars sé getið.
Sameiginleg kennsla var í þessum greinum:
Leikfimi. Riltum var skipt í tvo flokka, mest þó í samræmi við
deildarfang í bóknámi, og hafði sá, er meira tók til yngri deildar,
5Yz st., hinn 5 st. Auk þessa voru margir aukatímar eftir nýár.
Stúlkur höfðu 4 st. Síðari hluta yetrar var allmikið notaður hljóð-
færasláttur við kennsluna, bæði hjá piltum og stúlkum.
Söngur. Piltar 2 st., stúlkur 2 st., blandaður söngur 2 st.
Fornbókmenntir. 2 st. Lesin og skýrð Egilssaga (útgáfa Sigurðar
Nordals), farið yfir allt óbundið mál. Auk þess lærðu nemendur all-
margt af vísum úr Höfuðlausn og Arinbjarnarkviðu, svo og úr Háva-
málum, með skýringum.
Y n g r i d e i 1 d. (A og B).
lslenzka. Réttritun 1 st. Notað æfingakver Friðriks Hjartar. —
Málfræði 2 st. Notuð málfræði Benedikts Björnssonar; aðaláherzla
lögð á beygingafræði. Skriflegar æfingar að staðaldri, meira þó í B.
— Ritgerð 1 st., atlnigasemdir og greinargerð fyrir leiðréttingum á
heimastílum, er gerðir voru einn í viku.
Danska. 3% st. Kennslubók Jóns og Jóhannesar.' í B farið yfir I.,
alla bókina, og II., bls. 1—94. í A II., öll bókin, og III., bls. 1—41.
Lesið málfræðiágrip í I. Heimastíll einu sinni í viku, í B þó aðeins
frá nýári.
Enska. 3 st. Geirsbók, lesnir 50 kaflar framan af bókinni. Síðara
hluta vetrar vanalega heimastíll einu sinni I viku.
islendingasaga. 3% st. Islendingasaga eftir Arnór Sigurjónsson,
til bls. 260.
Landafræði. 2 st. Landafræði Bjarna Sæmundssonar, bls. 1—19 og
169—235.
Náttúrufrxöi. 2 st. (Ýmissa ástæðna vegna féll nokkuð úr). Dýra-
fræði Bjarna Sæmundssonar, bls. I—79. Mikið sýnt af myndurn með
skuggamyndavél.
Heitsufræði. 2 st. Stuðzt nokkuð við kaflann unr manninn í dýra-
fræði Bjarna Sænumdssonar, en mjög mörgu bætt inn í, einkum um
líffræðileg efni. Ýtarleg fræðsla var veitt um áhrif áfengis og tóbaks.