Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 56
54
SMÍÐAKENNSLAN Á LAUGUM
[Viðar
ætti að skipa mikið rúm í skólanum, enda hefir reynslan
sýnt, að smíðadeildin er vel metin og vel þegin.
Eftir að smíðadeildin kom til sögunnar hefir smíða-
kennslan í yngri og eldri deild verið sú sama og áður,
eða sem svarar 2 stundum í viku (nú 4 st. hálfsmánaðar-
lega). Er þá smíðað fyrir skólann. Skal að því vikið síðar.
Nemendum smíðadeildar má floka í þrennt. Nokkrir
eru þeir, sem stundað hafa nám í tvo vetur í skólanum,
eða sem því svarar annars staðar. Þá eru þeir, sem stund-
að hafa nám 1 vetur, eða sem því svarar annars staðar, eru
í smíðadeild og stunda bóklegar greinar sínar með eldri
deild. Og enn eru þeir, sem alls ekki hafa verið í skólan-
um, eru teknir í smíðadeild, en stunda bóklegar greinar
sínar með yngri deild.
Umsóknir um smíðadeild hafa farið vaxandi hin síðari
ár, flestir hafa nemendur þar verið 15, síðastl. vetur,
enda var þá aukið við húsnæði deildarinnar og áhöld.
Skólinn útvegar til smíðanna efni, sem nemendur fá
keypt. Þá leggur hann og til öll áhöld. Meginþluti efnis-
ins er greni og fura; en auk þess eik, brenni, askur, birki
o. fl. Eiga nemendur smíðadeildar allt, sem þeir smíða
sjálfir, að öðru en því, að hver þeirra verður að smíða
fyrir skólann, sem svarar þeim stundafjölda, er nemend-
ur eldri- og yngri deildar smíða.
Síðan skólinn tók til starfa, hafa stundað smíðar sem
aðalnám, eða verið í smíðadeild sem næst heilan vetur,
87 nemendur. En auk þess hafa stundað þar nám hálfan
vetur eða minna margir aðrir.
Kennslan á smíðaverkstæðinu, sem er á lofti yfir
austurálmu skólahússins, fer fram mestan hluta dagsins,
frá kl. 8 á morgnana til kl. 7 á kvöldin, að frádregnum
matarhléum. Heyrist þaðan í hamri og sög lengi dags,
enda oft unnið af kappi.
Ég hefi fyrir mér skýrslu yfir smíðisgripi, smíðaða í
skólanum veturna 1933—4, 1935—6 og 1936—7. Nefni ég
hér hina helztu þeirra,