Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 189
Viðar] ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M.
187
Skemmtun opinber var ein á vetrinum. Eitt markmið skemmtana
hér er að sannprófa, hvort eigi sé hægt að vera laus við drykkjuskap.
f vetur fannst ekki vínlykt af nema tveimur mönnum.
í móttökustofu kvennanna var birt áskorun svohljóðandi:
»Hér með er skorað á allar stúlkur, sem skemmtunina sækja og
jiátt taka í dansi, að dansa ekki við þá menn, sem áhrif víns sér á,
cf einhverjir verða«.
F. h. stúlknanna í skólanum:
(Tvö nöfn).
Stúlkurnar geta útrýmt víninu af samkomum ef þær aðeins viija.
Annað eins rothögg er ekki til fyrir menn, sem dansa, eins og það,
að stúlkurnar séu samtaka um að neita þeim um dans. Það er grátlegt
að sjá myndarlegar, ungar stúlkur í dansi með mönnum, sem slangra
áfram drukknir. Þetta mun þó gefa að Iíta á flestum dansleikjum.
Heimavistin. Ráðskonuskipti urðu í haust. Dagbjört Jónsdóttif
gcrðist forstöðukona húsmæðraskólans á ísafirði. Ingibjörg Júlíus-
dóttir stóð fyrir heimavistinni í vetur og leysti störf sín vel af hendi.
Fæði pilta kostaði kr. 1,39, kvenna kr. 1,16. Fæði er einlægt dýrara
hér en í sambærilegum skólum. Hygg ég, að meiri nýmjólkurneyzla
valdi þessu. Hver maður fær 1%—1% 1. á dag. Hver lítri kostar 20
aura. Ennfremur notum við töluvert af íslenzku smjöri og mikið af
garðmeti, sem einnig er 'nokkuð dýrt. Þá voru notaðar 12 tunnur af
saltsíld og nokkuð af kryddsíld. Hvergi er betri aðstaða að kenna
fólki að horða grænmeti og síld en einmitt í heimavistarskólunum.
Vornámskeið o. fl.
Húsmæðranámskeið stóð yfir í sex vikur, maí og fyrri hluta júní.
Aðalkennari var Ólöf Jónsdóttir, aðstoðarkennari Þórey Skaftadóttir.
Auk þess, sem kennt er á venjulegum húsmæðranámsskeiðum, nutu
ungu stúlkurnar kennslu í Ieikfimi, sundi og söng. Námsmeyjar voru
39. —
Nokkrir unglinga- og barnahópar koma hingað á vorin til sund-
náms. Átakamestur í þessu efni er séra Eiríkur Brvnjólfsson á Út-
skálum. Hann kemur hingað á hverju vori með 30—50 ungmenni til
sundnáms. — Slík aðhlynning er fermingargjöf hans til barnanna
sinna.
Gistihúsið. Tekið hefir verið á móti gestum síðan skóla lauk í
vetur og verður gert unz skóli hefst að nýju. Qistihúsið telst þó
tæplega starfandi nema frá um 20. júní til ágústloka.
Fundahöld. Fundir, sem hér hafa verið haldnir, eru þessir: Aðal-
fundur S. I. S., aðalfundur Félags héraðsskólakennara, fundur um
kennslumál, sem fræðslumálastjóri gekkst fyrir í sambandi við komu