Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 193
Viðar] ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. 191
Eftir miðjan vetur var meira kennd »hjálp í viðlögum«, ýmis atriði
mjög svo rækilega, t. d. um björgun, lífgun (aðferð Holger Nielsens),
stöðvun blóðrásar o. þ. h. Alloft gefnar spurningar til heima-úr-
lausnar.
Söngfræði. 1 st. Farið yfir söngfræðiágrip Sigfúsar Einarssonar.
Annars kennt með æfingum á töflu.
Reikningur. 3% st. Reikningsbók Ólafs Daníelssonar, aftur að
jöfnur.
Teikning. 2 st. Fríhendisteikning.
Sund. 4 st. Kennt fyrst og fremst bringusund og baksund, en einn-
ig björgun og skriðsund. Sundsýningar voru nokkrar og æft fyrir
þær sérstaklega.
Saumar. 4 st. Sjá síðar.
Smíðar. 4 flokkar, 4 st. hálfsmánaðarlega hjá hverjum. Sjá síðar.
Lestur. 1 st., leiðbeiningar og um leið nokkur athugun nýrri bók-
mennta.
F. I d r i d e i 1 d.
íslenzka. Réttritun 1 st. Notað æfingakver Friðriks Hjartar. —
Málfræði 2 st. Notuð Málfræði Halldórs Briem, farið yfir meginefni
hennar, nema setningafræðikaflann; og setningafræði Freysteins
Gunnarssonar, farið yfir aðalatriði sjálfrar setningafræðinnar. All-
mikið af skriflegum greiningum, einkum síðara hluta vetrar. — Rit-
gerð 1 st., sem í y. d.
Danska. 4 st. Dönsk lestrarbók eftir Jón Ófeigsson og Sigurð Sig-
tryggsson, bls. 1—229. Lesin málfræðin í I. hefti kennslubókar Jóns
og Jóhannesar. Heimastíll einu sinni í viku.
Enska. 3 st. Geirsbók, frá 30. kafla og út bókina. Engar skriflegar
æfingar, en nemendur látnir snúa íslenz.ku köflunum á ensku í tím-
unum.
Þýzka. 4 st. Kennslubók í þýzku eftir Jón Ófeigsson, öll bókin.
Meiri hluti nemenda gerði þó ekki stíla, og í málfræði voru rakin að-
eins þýðingarmestu atriðin.
Islandssaga. 1 st. íslendingasaga eftir Arnór Sigurjónsson, frá bls.
334 og aftur úr. Þorri nemenda flutti erindi um eitthvert atriði sög-
unnar.
Mannkynssaga. 2 st. Mannkynssaga handa unglingum eftir Þorleif
H. Bjarnason, öll bókin.
Landafræði. 3 st. Landafræði Bjarna Sæmundssonar, bls. 19—158.
Náttúrufræði. 2 st. Sama og í y. d.
Eðlisfræði. 4 st. Fysik for Mellemskolen I.—11. eftir Th. Sundorph
notuð. Fyrra heftið endurlesið. Lítið hægt að gera af tilraunum vegna
áhaldaleysis.