Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 115
Viðar]
Fundargerð
Félags, héraðs- og alþýðuskólakennara 1937.
Laugardaginn 26. júní 1937 var 5. fundur félags héraðsskólakenn-
ara settur og haldinn að Laugarvatni.
Þessir félagar voru mættir:
Frá fteykholtsskóla: Kristinn Stefánsson, Þorgils Quðmundsson,
Þórir Steinþórsson.
Frá Laugarvatnsskóla: Bergsteinn Kristjónsson, Bjarni Bjarnason,
Björn Jakobsson, Guðmundur Gíslason,
Guðmundur Ólafsson, Ragnar Ásgeirsson,
Þórarinn Stefánsson, Þórður Kristleifsson.
Fáeinir gestir voru mættir, þar á meðal Haraldur Guðmundsson
kennslumálaráðherra.
Formaður félagsins, Kristinn Stefánsson, setti fundinn og nefndi
síðan til fundarstjóra Þórð Kristleifsson. Ritari félagsins var fundar-
ritari. — Þessi mál voru tekin til umræðu:
I. Öryggi héraðsskólanna. — Bjarni Bjarnason hélt erindi um mál-
ið og tók kennslumálaráðherra næstur til máls. Var síðan rætt nokk-
uð um málið án þess ályktun væri tekin. Nefnd var kosin í málið,
þeir Bjarni Bjarnason, Guðmundur Gíslason og Kristinn Stefánsson.
II. Fundurinn sendi svohljóðandi simskeyti:
»Aðalsteinn Eiríksson, skólastjóri. Fundur héraðsskólakennara að
Laugarvatni býður Reykjaness-skólann velkominn í hóp héraðsskól-
anna og árnar honum allra heilla«.
Fundinum höfðu borizt skeyti frá Aðalsteini Eiríkssyni og Birni
Guðmundssyni með heillaóskum og tilkynningu um, að þeir gætu
ekki sótt fundinn.
Fundi var síðan frestað til næsta dags.
Næsta dag, sunnudaginn 27. júní, hófst fundur að nýju. Var þá
mættur frá Laugaskóla Leifur Ásgeirsson. — Þá var tekið fyrir:
III. Útgáfa »Viðars«. — Formaður félagsins gaf skýrslu um kostn-
að við hana o. fl., meðal annars ráðstafanir um útgáfu þessa árs.
I nefnd voru kosnir þeir Leifur Ásgeirsson, Guðmundur Gíslason
og Þorgils Guðmundsson.
8