Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 191
Viðar] ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. 189
Skólastjóri var Leifur Ásgeirsson. Aðrir kennarar voru Konráð
Erlendsson, Þórhallur Björnsson, Þorgeir Sveinbjarnarson, Páll H.
Jónsson, Hrefna Kolbeinsdóttir, Erlingur Davíðsson og Bergþóra
Davíðsdóttir. ■— Katrín Kristjánsdóttir hafði umsjón með og vann að
ræstingu skólahúsanna og þjónustu nemenda. Skólabryti var Erlingur
Davíðsson. Auður Gunnlaugsdóttir var ráðskona mötuneytisins. -—
Umsjónarmenn voru Þórir Benediktsson og Hallgrímur Vilhjálmsson.
Hringjarar voru Gunnlaugur Björnsson og Guðni Árnason.
Þorgeir Sveinbjarnarson kom sl. haust heim frá útlöndum eftir
nær þriggja missira námsdvö! í Englandi, Danmörku og Þýzkalandi.
Lauk hann á þeim tíma prófi við Statens Gymnastikinstitut í Kaup-
mannahöfn með ágætiseinkunn.
Tilhögun náms og kennslu. .
Hún var í aðalatriðum sem í fyrra. Bókleg kennsla fór fram mest
með viðtali og yfirheyrslum og skriflegum æfingum. Nám var bundið
að mestu, nema að nokkru í smd., með mjög litlum undanþágum,
helzt fyrir nemendur í ensku og þýzku, er frjáls var þátttaka í. Var
þýzka nú kennd í fyrsta sinn, í einum flokki með 8 þátttakendum úr
e. d. og smd. Ensku stunduðu í tveimur flokkum 18 nemendur. Piltar
í y. d. fengu að velja milli teikningar og söngfræði (stúlkum var ekki
skyld þátttaka vegna saumanáms þeirra). I söng tóku þátt allir
reglulegir nemendur nema 4. Y. d. var tvískipt, í y. d. A. og y. d. B.
— Sökum smíðanáms og þvotta féll niður almenn kennsla á víxl sinn
laugardaginn hjá hvorum hluta y. d. og eftir hádegi á mánudögum
hjá e. d.
Kennslan skiptist þannig á kennarana:
Leifur Ásgeirsson kenndi íslenzku að undantekinni ritgerð í y. d. A,
íslenzku í e. d., reikning í y. d. B og e. d., mannkynssögu og eðlis-
fræði í e. d., þýzku í sérflokki og las fornbókmenntir með öllum
deildum sameiginlega.
Konráð Erlendsson kenndi dönsku og Iandafræði í y. d. og e. d. og
reikning í y. d. A.
Þórhallur Björnsson kenndi smíðar í öllum deildum og teikningu
í y. d.
Þorgeir Sveinbjarnarson kenndi leikfimi í öllum skólanum, sund í
y. d. (að mestu), íslenzku í y. d. B og ritgerð í y. d. A, heilsufræði í
y. d. og sá um útivist pilta.
Páll H. Jónsson kenndi söng í öllum skólanum, fslendingasögu og
dýrafræði í y. d. og e. d., söngfræði í y. d., leiðbeindi um lestur í
y. d. og e. d. og sá um útivist stúlkna. Ennfremur annaðist hami af-
greiðslu á bókasafni.