Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 110
108
FRÁ ÚTLÖNDUM
[Viðar
Brunnsvík, er RickarcL Sandler. Hann var kennari frá 1908
til 1924 og skólastjóri til 1926. Nú er hann utanríkismála-
ráðherra. Sandler er einn hinn mætasti maður í jafnaðar-
mannaflokknum sænska og fyrir hans framkvæmdir var
„Arbetarnas Bildningsförbund“ (A. B. F.) Stofnað 1912.
Hann er ekki flokksmaður heldur stjórnvitringur.
Núverandi skólastjóri er dr. Alf Alnlberg, einn hinn
mesti menningarfrömuður, atkvæða rithöfundur og mann-
þekkjari. Hann er með fremstu heimspekingum Svía. Það
hefir verið sagt um Ahlberg, að það væri ekki unnt að
skipa honum á neinn flokksbás. Hann skoðar sig nánast
sem húmanista, innblásinn af kristindóminum og er mjög
fjarlægur efnishyggju Marxista. Það er einkennandi, bæði
fyrir hann sjálfan og sænska jafnaðarmenn, að hann skuli
starfa mitt á meðal þeirra. En samvinna skólans við A. B.
F. hefir sett á hann sinn skýra svip. Og í mörg ár hafði
sambandið þar sína aðalskrifstofu.
Vetrarskólinn í Brunnsvík starfar sex mánuði og er sam-
skóli. Síðan 1919 hefir hann starfað í tveim deildum. Eldri
deild hefir verið tvískipt á síðari árum, í fornmenntadeild
og deild fyrir þjóðmegunarfræði (Nationalökonomi). Yngri
deildar námsgreinar eru: Reikningur, skrift, saga, landa-
fræði, eðlisfræði og tungumál. í öðrum bekk eru náms-
greinar: Félagsfræði, hagfræði, efnafræði, eðlisfræði og
stærðfræði í þjóðmegunardeild, en í fornmennitadeild: Fé-
lagsfræði, bókmentnasaga, trúarbragðasaga og heimspeki.
Félagslíf er einstakt í skólanum. Danskur menntamaður,
sem er kunnugur lýðháskólum þar í landi, segist aldrei
hafa komizt í kynni við jafnmikla reglusemi og aga í
nokkrur skóla. Þetta er a. m. 1. nemendunum að þakka;
einungis þeir, sem beztu meðmæli hafa hlotið, eru teknir
í skólann.
Fjöldi af beztu rithöfundum og stjórnmálamönnum Svía
eru gamlir Brunnsvíkur-nemendur. Ennfremur margir op-
inberir starfsmenn samvinnufélaga,fræðsluhringa og stétta-
félaga. Skólinn, með Ahlberg í broddi fylkingar, er nú ein