Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 15
Viðar]
VÍSINDI OG HAMINGJA
13
Það hafa þeir sýnt og sannað með atferli sínu fyrir bylt-
inguna. í Japan, þar sem hernaðarstéttin (samurai) hafði
einkarétt á hugrekki í hernaði, leiddi almennt herútboð
það af sér, að allir karlmenn yrðu gæddir þeim eiginleika.
Á þennan hátt hefir margt orðið til þess meðal stórþjóð-
anna á síðast liðinni hálfri öld, að hnekkja einkarétti yfir-
stéttanna á hugrekkinu. Ef þetta hefði ekki gerzt, hefði
lýðræðið verið í miklu meiri hættu en það er.
En hugrekki í bardaga er á engan hátt hin eina tegund
hugrekkis, og ef til vill ekki sú veigamesta. Það þarf hug-
rekki til að horfast í augu við fátækt, við háð og spott,
við fjandskap eigin félagsskapar. Á þessu sviði getur hinn
hraustasti hermaður oft verið hið mesta bleyðimenni. Og
umfram allt þarf hugrekki til þess að hugsa rólega og
skynsamlega, meðan á hættunni stendur og hafa stjórn á
þeirri reiði og skelfingu, sem þá grípur um sig. í þessu
efni getur uppeldið tvímælalaust komið miklu til leiðar.
Allar ráðstafanir til eflingar hugrekki ná og miklu betur
tilgangi sínum, ef fyrir er góð heilsa og sterk líkamsbygg-
ing, góð næring og óbælt hvatalíf. Ef til vill mætti upp-
götva hinar lífeðlisfræðilegu orsakir hugrekkisins með því
að bera saman blóð kattar og kanínu. Að öllum líkindum
eru engin takmörk fyrir því, hvað vísindin gætu gert til
þess að auka hugrekkið með fordæmum, mannraunum, í-
þróttalífi og hæfilegu mataræði. Alls þessa njóta yfir-
stéttardrengir vorir til mikilla muna, þar sem þeir hafa
forgangsrétt til allra félagslegra gæða. Það hugrekki, sem
íram að þessu hefir verið alið upp með lægri stéttunum,
er þegnlegt hugrekki, sem ekki er hæft til framtaks eða
forystu. Þegar þeir eiginleikar, sem forystumaður nútím-
ans verður að vera gæddur, verða orðnir almenningseign,
verður ekki lengur að ræða um foringja og fylgifiska, og
þá mun lýðræðið loks vera orðið að raunveruleika.
En óttinn er ekki hin eina undirrót illvildarinnar. Öfund
og vonbrigði eiga þar líka hlut að máli. Öfund krypplinga
og örkumla manna er alkunn uppspretta óvildar, en aðrar