Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 219
Viðar]
FRÉTTIR AF NEMENDUM
217
lærði bakaraiðn, var listhneigður, mjög laginn að mála, iðkaði íþrótt-
ir kappsamlega, vann met á íþróttamóti á ísafirði, en varð bráð-
kvaddur á Breiðdalsheiði á heimleið þaðan. — Margrét Jónsdóttir
frá Haukadal er prestsfrú á Hrafnseyri. — Rafn Sigurðsson frá Kjar-
ansstöðum, skipstjóri á flutningaskipinu Katla, kvæntur. — Sigríður
cblafsdóttir frá Austvaðsholti, húsfrú á Ásmundarstöðum. — Sigríður
Þórðardóttir frá Kjaransstöðum stundar ljósmyndasmíði í Reykjavík,
gift. -— Sigurður Þórðarson skrifstofustjóri útvarpsins og söngstjóri
Karlakórs Reykjavíkur. Kvæntur Áslaugu Sveinsdóttur, nemanda
skólans 1922—24.
1910— 11.
Árný Filippusdóttir frá Hellum, forstöðukona húsmæðraskóla í
Hveragerði í Árnessýslu. — Bjarni Ólafsson frá Isáfirði. — Guð-
mundur Guðmundsson frá Selakirkjubóli, bóndi á Sæbóli, Ingjalds-
sandi, kvæntur. — Guðmundur Ólafsson frá Hólum, trésmíðámeistari
í Reykjavík, kvæntur. — Guðjón Davíðsson frá Álfadal, bóndi í
Fremstuhúsum, kvæntur Borgnýju Hermannsdóttur, sama stað, nem-
anda skólans 1913—14. — Jón Valdemarsson frá Hnífsdal. — Jón
Ólafsson frá Hólum, bóndi á Gemlufalli, fann upp garðyrkjuplóg,
kvæntur. — Gróa Guðmundsdóttir frá Hólufn, húsfrú I Reykjavík. —
Ólafur Sigurðsson frá Þingeyri. — Sigríður ólafsdóttir frá Haukadal
er dáin. — Sigurður Jóhannesson frá Meiragerði kvæntist norður í
Húnavatnssýslu. — Stefán Pálsson frá Kirkjubóli býr á óðali' for-
eldra sinna, er söðlasmiður. Kvæntur Guðrúnu Össurardóttur, nem-
anda skólans 1927—29.
1911— 12.
Ágústa Eyjóifsdóttir frá Kirkjubóli í Valþjófsdal, er dáin. — Borg-
hildur Jenny Jónsdóttir frá Bakka fór til Danmerkur. — Guðbergur
Davíðsson frá Álfadal er bóndi á Höfða í Dýrafirði, kvæntur.—Guð-
niundur Eiríksson frá Reykjavík, fór til Ameríku, varð flugmaður og
tók þátt í stríðinu eftir 1914. — Jón Bjarnason frá Þjngeyri, —•
Kjartan Jakobsson frá Unnarholti kvæntist, á við að stríða langvar-
andi heilsuleysi. — Magnús Guðmundsson frá Höfn hefir verið
starfsmaður við Reykjavíkurhöfn. — Margrét Amfinnsdóttir frá
Lambadal ytri er húsfrú í Lambadal innri. — Margrét Jónatansdóttir
frá Engidal fór til Noregs. — Ólafía Kristjánsdóttir frá Garði, dó
ung. — Ólafur Magnússon frá Bíldudal, skipstjóri s.s. Eldborg frá
Borgarnesi, kvæntur. — Óskar Jónsson frá Fjallsskaga er í stjórnar-
nefnd síldarútvegs ríkisins, kvæntur í Hafnarfirði. — Páll Hagalíns-
son frá Hjarðardal, skipasmiður á ísafirði. — Júlíus Rósinkransson
frá Tröð er skrifstofumaður í Kf, Stykkishólms, kvæntur Sigríði