Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 130
128
REYKJANESSKÓLI 1934—1937
[Viðar
Skólastjórn, kennarar og
annað starfsfólk.
Eftir Aðalstein Eiríksson.
Skólahérað barnaskólans samanstendur af tveimur fárskólahéruð-
um. Skólanefndir þeirra beggja hafa myndað skólanefnd Reykjaness-
skóla fram að þessu. I nefndinni voru: Jón H. Fjalldal, bóndi, Mel-
graseyri, Þorsteinn Jóhannesson, sóknarprestur, Vatnsfirði, Halldór
jónsson, bóndi, Rauðamýri, Páll Pálsson, bóndi, Þúfum, Sigurður
Pálsson, bóndi, Nauteyri og Ölafur Ólafsson, bóndi, Skálavík. A
síðastliðnu vori varð ný skipan á nefndinni. Eru nefndirnar nú tvær,
fyrir barnaskólann og héraðsskólann. 1 skólanefnd barnaskólans eru
allir áðurtaldir nefndarmenn, fimm að tölu, að undanteknum Jóni H.
Fjalldal. I skólanefnd héraðsskólans eru nú: Jón H. Fjalldal, For-
maður, Páll Pálsson, Sigurður Pálsson, Bjarni Sigurðsson, Vigur og
Jens Hólmgeirsson, bæjarstjóri, ísafirði. Skólanefndin hefir starfað
einhuga að málefnum skólans, hefir það verið sterkasti þátturinn í
velgengni hans til þessa, að nefndina skipa hinir víðsýnustu menn,
sem hafa óskorað traust almennings að baki sér. í samstarfinu við
þá hefir það sannast, að hægt er að vinna að einstökum málum ofar
deilum og dægurþrasi. Skólastjóri hefir verið, frá byrjuh, Aðalsteinn
Eiriksson, fyrsti kennari Eiríkur Stefánsson, stundakennarar frú
Bjarnveig Inginnindardóttir, Ernst Freseníus og Jón Pálsson, bóndi,
Svansvík. Kennarar á einstökum námsskeiðum: Jakob Jónsson,
íþróttakennari, Hallsstöðum, Tryggvi Þorsteinsson, kennari, isafirði
og Ólafur Ólafsson, kennari frá Tannanesi, Önundarfirði, sein nú er
ráðinn annar kennari skólans. Ráðskonur skólans: Frú Bergþóra
Jónsdóttir undanfarna þrjá vetur, lienni til aðstoðar hafa verið: Jór-
unn Ölafsdóttir frá Skálavík og Herdís Samúelsdóttir frá Furufirði.
Ráðskonur við sumarstarfsemina hafa verið: Quðrún Halldórsdóttir,
frá Arngerðareyri og Jórunn ólafsdóttir. Prófdómari skólans hefir
verið Þorsteinn Jóhannesson, sóknarprestur í Vatnsfirði.