Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 194
192 ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM M. M. [Viðaf
Reiknitigur. 4 st. Reikningsbók Úlafs Daníelssonar, farið yfir alla
bókina nema kaflann um jöfnur og síðustu dæmin.
Sund. 4 st. Kenndar sömu aðferðir og í y. d., en mest áherzla lögð
á björgun og skriðsund, og sundsýningar æfðar talsvert.
Smiðar. Kenndar í 2 flokkum, 4 st. hálfsmánaðarlega hjá hvorum.
Sjá síðar.
Lestur. 1- st. Líkt og i y. d.
S m í ð a d e i 1 d.
Kennt var á verkstæðunum mestan hluta dagsins frá kl. 8 f. h. til
7% e. h. (þ. e. »rétt« klukka 7 f. h. til 6V2 e. h.), að frádregnum
matarhléum, og útivistartímum að nokkru. Sjá síðar.
Munir, unnir á skólanum.
Saumað var leikfimisföt, náttföt, morgunkjólar, ullarkjólar, pils,
blússur, svuntur og ein kápa. Stúlkurnar voru skyldar til að sauma
að minnsta kosti kjól, eða pils og blússu, og náttföt, en saumuðu
allar eitthvað meira. Ctsaumsmunir voru púðar, koddaver, borðdúkar
og kaffidúkar.
Smiðaðir voru 150 munir, auk ýmsra smáhluta og viðgerða. Voru
það 7 hefilbekkir, 3 dragkistur, 3 skápar, 3 skrifborð, 25 önnur borð,
24 stólar, 3 rúmstæði, 19 bekkir, 25 föruhirzlur (kistur, koffort o. þ.
h.), 3 hillur, 2 sleðar, 23 pör skíði, 2 heflar, 7 umgenðir ýmislegar,
1 hliðgrind. Af þessu var unnið skólanum í skyldutímum 12 skóla-
borð, 15 setubekkir, 2 langbekkir, 1 hilla, 3 stólar (auk þess all-
margir stólar í smíðum, en eigi fullgerðir og ótaldir hér að ofan), 2
hefilbekkir (þó eigi að fullu). Hitt smíðuðu nemendur smíðadeildar
fyrir sjálfa sig. — Auk þessa unnu aðrir en nemendur ofurlítið að
smíði á verkstæðinu með tilsjón smíðakennarans.
Vegna mannfjölda í smíðadeild var bætt við smíðaverkstæöi á
þurrklofti því, er verið hefir, en þvottur þurrkaður á svölum leik-
fimishússins.
Próf.
Miðsvetrarpróf fór fram 11.—16 janúar. Prófdóniari var Tryggvi
Sigtryggsson, bóndi á Laugabóli.
Vorpróf hófst 22. marz og var lokið 12. apríl. Fræðslumálastjóri
skipaði prófdómara þá síra Hermann Hjartarson á Skútustöðum og
Tryggva Sigtryggsson. Síra Hermann forfallaðist vegna veikinda,
og var fenginn í stað hans cand. phil. Bragi Sigurjónsson kennari I
Varmahlíð. Um sauma dæmdu Kristjana Pétursdóttir forstöðukona
Húsmæðraskólans og Halldóra Sigurjónsdóttir kennslukona við sama
skóla.