Skírnir - 01.01.1866, Blaðsíða 83
Svissland.
FRJETTIH.
83
frumvarpinu, sem á8ur ei getife. BáSar Jtingdeildirnar fjellust á
frumvarpiS óbreytt a5 mestu, en svo skyldi þa? boriE undir alls-
herjar atkvæSi í öllu iandinu. J>aS gengur fram til nýmæla í
sambandslögum Svisslendinga, er fær jákvæði af meir en helm-
ingi allra atkvæðabærra manna, og um lei8 af helmingi fylkisbúa
í 12 fylkjum'. Atkvæ8agrei8slan gekk þó ekki a8 vonum, a8 eins
tvö e8a þrjú atri8i frumvarpsins gengu fram, en flest hinna skorti
nokkuð til helmings atkvæSa. Sökum þess, a8 eigi lá fjærri um
framgöngu breytinganna, hafa framfaramenn og bráSbótamenn (t.
d. þeir sem eru í „Helvetiu", fjelagi er svo nefnist) tekiS a<5
safna svo atkvæSum, sem á8ur er viki8 á, a<5 nýjar kosningar
ver8i haf8ar til þings; en þeir ætla sjer um lei8 a8 koma þeim
mönnum fram vi8 kosningarnar, er öruggar gangi fram og mæli
enn skorinorBar fyrir endursko8an laganna og þeim breytingum, er
þeim og öllum vel hyggjandi mönnum þykir brýnasta nau8sýn á,
landinu til framfara og sæmdar.
þýzkaland.
Vibureign stórveldanna á í'ýzkalandi út af máli hertogadæmanna. Af
fundum og fl.
J>ví er mi8ur, a8 frelsis og þjó8erniskenningar vorra tíma hafa
falli8 í grýttan jar8veg á þýzkalandi og komi8 þar upp til lítillar
blessunar a8 svo stöddu. Um lei8 og þjóBverjar og höf8ingjar
þeirra ganga á og kúga önnur þjó8erni, rísa þeir upp me8 vopnum
fyrir þjóSernisrjetti í hertogadæmunum norSurfrá. Líti ma8ur jþar
á sjálfar hreifingarnar, á atferli flokka og forgöngumanna, er bágt
a8 neita því, a8 hjer er allt á einhverja lund grauta8 og gruggugt.
Yjer eigum ekki vi8 suma af riddaralýSnum á Holtsetalandi og í
Sljesvík, er mest hefir langa8 til þess a8 komast í samlag vi8
jungherrana á Prússlandi, e8a í jþjónustu svo dýrSlegs höf8ingja,
sem Prússakonungur er, — nei! vi8 sjálfar frelsishetjurnar, þjó8-
ræknismennina af flokki Sijesvíkur-Holtseta. Jpeir vildu ekki
þýSast lengur annarleg yfirrá8, þeir vildu skiljast frá Dönum og
komast í lög vi8 þjó8bræ8ur sína fyrir sunnan —, því má taka!
U Joau cru alis 22, en þrjú al jrciin — cn minnstu —jafuast til tveggja,
er þau atkvæði skal greiða.
6*