Skírnir - 01.01.1866, Blaðsíða 74
74
FKJETTIR.
•Spjínn.
tekinn höndum. f>a<5 er og líkara a8 aftaka Prims hefSi haft
verri eptirköst á Spáni, en fær lyktir er urSu, J>ví enginn af þeim,
sem nú eru þar uppi, héfir fengiS meira airæmi hjá alþýSunni
fyrir hugprýSi og hreysti, og þar meS er hann einarSari frelsisvinur
en flestir hinna; honum hefir heldur aldri veriS lagt þaS til orSs,
sem þeim O’Donnel, Concha, Serrano og fl., aS hann hafi neytt
embætta eSa valda til ávinnings og fjárfanga meS öllu móti, þó
hann hafi ella veriS viS margt brugSinn og staSiS í mörgum stór-
málum1. Hann fjekk stórmikiS fje, svo milljónum skipti, meS
konu sinni (1856, frá Mexico), en hafSi nú eydt því aS mestu og
var kominn í skuldir. í Portúgal auglýsti Prim ávarp til Spán-
verja og skýrir þar svo frá áformi sínu, aS sjer hafi ekki komiS
til hugar aS stofna íberiskt sambandsríki, en hann hafi viljaS
rjetta þeirra hluta á sínu landi, er yrSi aS lúta í lægra haldi og
bera allar álögur, móti hinum, er hafi sölsaS undir sig öll völd og
rjettindi. J>aS heyrSist síSast af Prim, aS hann væri kominn til
Gibraltar , því Portúgalsstjórn þótti sjer vandi á hendi aS leyfa
honum vist þar í landi.
Fjárhagur Spánar hefir lengi veriS meS mestu óreiSu, og þykja
peningamönnum þar svo illir skuldastaSir, aS þeir kalla fleygt í
sjóinn ef lánaS er. Fyrir þá sök var samþykkt sala klaustragóz-
anna, þó klerkarnir hafi spornaS á móti. f>au eru virS á 2500
») Prim er greifi að nafubdt og hefir fengið margar fleiri. Hann er sagður
af lágum stigum, en kom miklu orði á sig í stríðunum á Spáni 1833-
39, og varð yfirliði. 1813 beittist hann fyrir frarnfaraflokkinum í
móti Espartero og hafði upp ur J>ví herforingjanafn og herráð i Madrid'.
Ári síðar var honum kennt um vitorð í samsærinu gegn Narvaez, var
dæmdur til dauða, en gcfnar upp sakir og fengin landstjdrn á Portorico.
Hann kom til Spánar aptur er O’Donnel var kominn til valda, og er
sagt hann hafi heitið O Donnel því, að vekja ekki dspektir meðan hann
væri við stjdrn. Prim var í hér vesturþjdðanna á Krimey og fjckk þar
góðan orztir, en mestu frægð síðar í stríðinu við Marokkd, þvi í aðal-
bardaganum, er Tetuan var unnin, var honum það helzt þakkað, að
Spánverjar fengu sigur. Um þenna bardaga var kveðið kvæði, sem er
mjög í alþýðu munni á Spáni, en viðkvæðið í hverju erindi er þetta:
<(lifi, lifi, lifi Prim!”