Ný sumargjöf - 01.01.1862, Blaðsíða 78
78
í brún, þ(5 að saltfiskurinn verði ekki óaðfinnanlegur á
einum degi. — Kaupmennirnir voru líka með í lífinu:
1161 var hið fyrsta skuldskeytingarbrjef (Vexel) flutt
af kaupmönnum milli Messína og Miklagarðs, og mun
slíkt hafa styrkzt úr því, því að árið 1246 ljet Innocen-
tius páfi IV. borga 25,000 mörk silfurs í Frakkafurðu
með slíku brjefi, og er það brjef enn til, og hið clzta
sem inenn hafa af því tagi. Annað, sem harðla mikið
ljetti undir verzlun og framfarir manna, var stofnun
banka, og var það kaupmanna verk: 1171 var hinn
fyrsti banki stofnaður, í Feneyjum;en þó sjer það
á hvað allt gekk seint í rauninni, þó að menn haldi að
framfarirnar í útlöndum sje svo skjótar: fyrst 1345 var
næsti banki stofnaður, í Genúa; 1609 í Amsterdam;
1619 í Hamborg; 1621 í Niirnberg; 1657 í Stokk-
hólmi; 1694 í Lundúnum. j>essi fjölgun bankanna á
17. öld kom af því, að allstaðar, og þó mest á þýzka-
landi, var komin svo mikil truflun á allt peningagildi,
að furðu gegndi; sú tíð var kölluð „Kipperzeit“ og
„Wipperzeit“, og skildu inenn það, að bankar voru hin
einustu meðöl til að reisa rönd við slíkri óreglu, eins
og líka varð. Svo rammt kvað að þessu, að í Saxlandi
var einn gamall dalur jafn 15 nýjum dölum — svo
ljelegir voru peningarnir orðnir og allt dýrt þar eptir.
Um aldamótin 1300 fóru menn að hafa kompás
f>essi banki var einungis fyrir kaupmenn, og var „Girobanki‘%
o: eins konar sameiginlegur sjó«&ur allra þeirra kaupmanna, sem búa
á þeim staí); og þeir peningar, sem lag<bir eru í slíkan banka, koma
í hendur nýrra skiptavina Dieí) ávísunum ei)a afhendingum. Nú er
hvergi neinn verulegur Girobanki, nema í Hamborg.