Norðurljósið - 01.01.1966, Qupperneq 105
NORÐURLJOSIÐ
105
sérhver ritning, sem innblásin er af Guði, sé nytsöm til fræðslu,
til umvöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti.
Samkvæmt þessum orðum hans getur þú, getur sérhver maður,
lesið gamla testamentið sér til fræðslu. Það gera búfræðingar
Israels nú á dögum t. d. Þeir gá vandlega að þeim gróðurlýsing-
um, sem er að finna í gamla testamentinu, og rækta svo sams
konar gróður þar nú. En þar er fleiri fræðslu að finna, sem hverj-
um manni er hollur fróðleikur. Þar má finna umvöndun, leiðrétt-
ing og menntun í réttlæti. Er ekki þér og mér þörf á þessu?
Ráð mitt er því: Lestu heilaga ritningu. Leyfðu henni að fræða
þig, vanda um við þig, leiðrétta þig og mennta þig í réttlæti.
Þú stundaðir sérstakt skólanám í æsku. Framkvæmdir þínar
um ævina hafa sýnt, að þér varð það hvatning til dáða og hald-
gott veganesti.
Eg fór að Iesa biblíuna sein barn, og ég held því áfram enn í
dag. Hún hefir reynzt mér vel, og ég hefi miklar mætur á gamla
testamentinu. Þar má finna gróðursæla fróðleiks dali og tár-
hreinar lindir guðlegrar speki og opinberunar, sem veita þeim
mannvit meira, er af þeim teyga.
Ég skal ekki þreyta þig lengur með sönnu lofi um gamla testa-
mentið. Finnist þér enn, gagnstætt Páli postula, að sú bók gagni
lítt til sálubótar, taktu þá hið nýja og lestu þar um Hann, sem
á degi lífsins í dag er frelsari okkar, en á morgun eftir dánar-
dægrið er ekki lengur frelsari, heldur dómari.
Ég hefi kennt mögu fólki ensku. Misjafn hefir áhuginn verið,
sem nemendur hafa sýnt. Mestur hefir hann verið hjá þeim, sem
hafa verið að því komnir að fara til Englands. Þeir vildu ekki
standa mállausir uppi í framandi landi. Mér finnst, að allir, sem
hugsa um það, að þeir eiga að deyja, ættu að kosta kapps um að
vera við því búnir. „I dag er hjálpræðisdagur,“ segir ritningin.
Hann getur endað í nótt.
Kveð ég þig svo með kjöryrði skátanna: „Vertu viðbúinn.“
Guð gefi, að svo megi verða. S. G. J.
---------x----------
Ævisoga George Mullers
er hin sígilda kennslubók í trú og trausti til Guðs. Hún lýsir fyrst
ævi ungs óreglumanns, afturhvarfi hans og áratuga þjónustu hans
fyrir Guð og menn. Hún fæst á afgreiðslu Nlj., 384 bls., O'g kostar
enn aðeins 25 kr., en póstgjald bætist við. Muller var maður, sem
fylgdi þeirri reglu, að biðja Guð um allt, en mennina um ekkert.