Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 74
74
gos yfir nær 6 vikum. Voru þá miklir jarðskjálptar
um hálfan mánuð f Arnessýslu. Tjölduðu menn þá
úti, því eigi þótti óhætt að vera í húsum inni, þá
er jarðskjálptarnir voru sem mestir. Segir Jón Eg-
ilsson svo frá, að menn hafi orðið að halda sjer í
grasið, þá er kippirnir komu. Kvaðst hann muna
marga jarðskjálpta, en engan þessum likan. Kom
eldurinn upp milli krossmessu og fardaga um vorið.
1578 var eldur uppi f Heklu. Fylgdu gosinu miklir
jarðskjálptar. Hrundu þá margir bæir í Ölfusi. 1580
segir Björn á Skarðsá, að Miðdalsjökull (Mýrdals-
jökull) hafi hlaupið fram með eldgangi. Rann eld-
og jökulflóðið fram hjá Þykkvabæjarklaustri, svo að
bæir eyddust en fólk sakaði ekki. 158 f og 1584
voru landskjálptar all-miklir, en mest kvað að
Heklugosi því, er varð 1597. Byrjaði það 10. dag
jóla um kvöldið eptir dagsetur, heyrðust þá norður
í land drunur miklar í suðri, og stóðu þær yfir i
sífeilu nær 12 dægrum. Hjelzt þetta þann vetur
allan fram að einmánuði, en gosið stóð langt fram
á sumar. Sáust stundum 18 eldar í einu i ljalliuu.
Urðu menn ærið skelkaðir af undrum þeira og ó-
sköpum, er þá gengu á. Var það þá, sem Oddur
biskup bauð að halda bænadaga til að mýkja reiði
Drottins, eins og áður hefur sagt verið. Fylgdi
þessu gosi öskufall svo mikið, að það náði f Lón
austur og norður í Bárðardal, og einnig fylgdu því
landskjálptar stórir. Hvarf þá Stóri-Geysir í Hvera-
gerði fyrir sunnan Reyki í Ölfusi,. en upp kom aptur
annar hver fyrir ofan túnið á Reykjum. Hrundu
þá enn margir bæir í Ölfusi og þar á meðal gjör-
samlega bærinn á Hjalla.
Það er vitaskuld, að hjer að framan er að eins
getið hinna mestu harðindauna. Virðist svo, sem