Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 154
154
aftur gljáann nudda menn þær lítið eitt upp úr feiti
eða glyceríni.
Til að falsa malað kaffi hafa menn óteljandi
aðferðir. Menn blanda saman við það mjög marg-
víslegum efnum, sem eru lik reglulegu kaffi á bragð
og lit, tii dæmis »síkoriu« (rótunum af jurtinni,
cichorium intybus), fíflarótum, korni, einkum rúgi,
ökörnum (ávöxtum eikitrjesinsj o. fi. Árið 1886
vóru á Þískalandi 123 síkoríuverksmiðjur, og 450
í allri Norðurálfunni. Þessi efni, sem blandað er
saman við malað kaffi, eru vanalega ekki skaðleg
firir heilsuna, enn þau hafa ekki í sjer þau efni,
sem gera kaffið svo hollt og hressandi, til dæmis
ekki neitt af kaffeíni. Af því að vjer Islendingar
kaupum kaffið óbrent og ómalað, eigum vjer ekki
á hættu að kaupa slíkar blöndur. Enn vjer brúkum
ímislegt af þessum efnum og drigjum kaffið með því
sjálfir; kalla sumir það kaffibæti, enn aðrir kaffi-
spilli. Rjettast væri, ef til vill að kalla það kaffi-
drígi. Mest af þeim kaffidrígi, sem kemur hingað
til landsins, flitst frá verksmiðju í Hamborg, enn
ekki veit jeg um samsetning hans (»exportkaffi«).
Margir brenna rúg með kaffibaunum og mala hann
síðan ásamt þeim. I útlendum bókum hef jeg fundið
nokkuð aðrar reglur um, hvernig fara eigi með rúg
til að búa til úr honum góðan kaffidrfgi, og set jeg
þær hjer, ef menn skildu vilja reina þá aðferð.
Omalaðan rúg skal leggja í bleiti eina nótt og hella
svo af vatninu, sem á honum hefur staðið, setja
hann í nitt vatn og sjóða hann í þvi, þangað til
kornin springa. Síðan eru kornin síuð og helt þris-
var á þau sjóðandi vatni. Þá eru kornin þurkuð
annað hvort í sólskini eða á heitri plötu (pönnu) eða
i bakaraofni. Þar næst eru þau brend eins og kaffi,