Vísir - 14.12.1960, Page 17

Vísir - 14.12.1960, Page 17
SJAVARUTVEGURINN • • I HALFA OLD Eftir Davíð Ólafsson fiskimálastjóra Þegar litið er hálfa öld aftur í tímann á þróun sjávarútvegsins á íslandi mun flestum fara svo sem höfundi þessarar greinar, aS undrast þá stórkostlegu breytingu, sem á hefur orðið. Við upphaf þessa tímabils voru framsýnir menn að eygja þá miklu möguleika, sem sjórinn umhverfis landið liafði uppá að bjóða, ef beitt væri þeirri tækni, sem þá var þekkt. Fram á miðja 19. ötd liöfðu framfarir á sviði fiskveiða íslendinga verið svo litlar að heita mátti alger kyrrstaða. Þilskipaútgerð var þá enn á frumstigi og það var fyrst undir lok aldarinnar, þegar Englendingar tóku gufuaflið i þjónustu fiskveiðanna, að íslendingar tóku að eignast sæmileg skip á þeirra tíma mæli- kvarða, þegar þeir tóku að kaupa þilskipin, sem Englendingar losuðu sig við er þeir sjálfir skiptu yfir til gufuskipanna. En þilskipin voru aðeins stig í þróuninni, sem stóð raunar skamma hríð. En engu að síður var það tíma- bil þýðingarmikið. Stóraukin afkastageta þess skipakosts, miðað við liin ófullkomnu áraskip, sem áður tíðkuðust eingöngu, hafði mikla þýð- ingu i tvennu tilliti. í fyrsta lagi kynntust menn nú betur en áður fiskimiðunum umhverfis land- ið og gátu betur gert sér grein fyrir þeim afla- möguleikum, sem fyrir hendi voru, og i öðru lagi myndaðist aukið fjármagn i landinu, sem leitaði stærri verkefna, sem nú voru á næsta leiti. A fyrsta áratug aldarinnar mátti segja að margt gerðist i senn, sem úrslitaþýðingu hafði fyrir þróun fiskveiðanna liér á landi. Á þessu timabili var fyrst sett vél i bát, sem verður upp- haf vélbátaútgerðarinnar, fyrstu togararnir eru keyptir tit landsins, sein verður upphaf togara- útgerðárinnar, síldyeiðar með herpinót hefjast, sem verður fyrirboði stóraukinna síldveiða og þannig mætti tetja fleira. í yfirliti því, sem hér fer á eftir nnin verða leitast við að sýna jiróun þá, sem orðið hefir frá árinu 1910. Verður það bezt gert með því að rekja þróun fiskiskipastólsins, aflamagnsins og loks hversu aflinn hefur verið hagnvttur. Fiskiskip astóllinn. Mynd á bls. 18, gefur yfirlit yfir breytingar þær, sem orðið hafa á fiskiskipastólnum, að skipategundum og stærð. Auk þeirra fiskiskipa, sem hér eru talin hefir svo verið allmikill fjöldi þilfarsbáta undir 12 rúmlestum og opnir vélbátar og loks framanaf tíniabilinu róðrarbátar. Þannig voru taldir 13G4 róðrarbátar árið 1910 en um tölu opnu vélbátanna og þilfarsbáta undir 12 rúml. var ekki vitað. Róðrarliátunum fór svo mjög fækkandi og voru árið 1920 komnir niður i 1000 en um tölu liinna var þá enn ekki getið í skýrslum. Það var fyrst árið 1930, að skýrslur telja þessa tvo flokka háta og voru þá 423 opnir vélbátar og 3G4 þilfarsbátar undir 12 rúml. Tala róðrar- báta var aðeins 171 og hurfu þeir smámsaman úr sögunni. Þilfarsbátum undir 12 rúml. og opnum vélhátum fór einnig fækkandi, þar sem nýbyggingar voru yfirleitt stærri þilfarsbátar. Þannig voru árið 1950 aðeins taldir gerðir út 223 opnir vélbátar og á skrá voru aðeins 110 þilfarsbatar undir 12 rúml. Síðasta áratuginn og einkum síðustu árin hefur bátum í þessum stærðarflokkum aftur farið lieldur fjölgandi. Ástæðunnar til þess er vafalaust fyrst og fremst að leita í útfærslu landhelginnar, sem hefir leitt til aukinnar aflasældar á grunnmiðum. Þegar tímabilið hófst var tími seglskipanna að líða og fór þeim ört fækkandi eftir 1910. Þegar kom fram á þriðja tug aldarinnar hverfa þau með öllu úr fiskiskipaflotanum, því þau sex seglskip, sem enn eru talin á skrá sem fiski- skip árið 1930, munu þá ekki hafa verið notuð til fiskveiða lengur. Vélvæðing fiskiskipaflotans hófst fyrir al- vöru um það teyti, sem þetta tímabil, sem hér Kiitter frá byrjun aldarinnar. Úr gömlum Vísisblöðum Nýr kvenbáningur. Síðustu árin hafa konur, einkum á Englandi, haft sérstakan utreiðabúning, nokkurs konar buxur með mjög víðum slíUmum. En nú er svo komið að farið er að taka þennan búning upp sem hversdagsföt. í Lundúnum tók all- margt kvenfólk upp á þvi í fyrra og nú um áramótin eru þær byrjaðar á því í París og má telja víst að hann ryðji sér smám samar til rúms i öllum siðuðum löndum. Fyrst var búningurinn sýndur í höfuðteikhúsunum í Paris og vakti hann sem geta má nærri afar- mikla athygli. Nú hafa konur tekið hann upp í ýmsum löndum. Mætir liann víða hinni mestu mótspyrnu einkum í lítt upptýstum löndum. Hafa stúlkur í Madrid verið ofsóttar af skriln- um, er þær hafa sést i buxum. I Kaupmannahöfn er eitthvað lítitsháttar farið að bera við að nota þennan búning og þykir mikið til koma — af því liann kemur frá París. En ef hann hefði komið frá Græn- landi væri það varla talið eftirbreytnivert. (Miðvd. 29. marz 1911) Davið Ólafsson. um ræðir, hófst. Togararnir sýndu brátt mikla yfirburði í veiðum, enda var fiskur mikill á þessum fyrstu árum togaraútgerðarinnar. Fjölgaði þeim ört fyrstu árin og allt fram undir 1930, en það ár voru þeir taldir 42. Uppúr því varð þó hreyting á. Miklir og vaxandi efnahagsörðugleikar steðjuðu að tog- araútgerðinni á árunum eftir 1930. Erfiðleikar þessir áttu upptök sín í þeirri viðskiptakreppu, sem gekk yfir heiminn um og eftir 1930 en litill skilningur manna á áhrifum þeirra erfið- leika á rekstur togaranna jók þá fremur en að draga úr. Togaraflotinn gekk þvi mjög úr sér á áratugnum fyrir styrjöldina þvi um ný- byggingar var ekki að ræða og árið 1940 va, tala togarnnna komin niður í 34. Það var fyrst eftir styrjöldina að liægt var að hefjast handa um endurbyggingu togara- flotans og á árunum 1947 til 1952 voru byggðir 44 nýir togarar. Voru þeir að stærð og öllum búnaði í fáu sambærilegir hinum eldri togurum, enda hurfu hinir síðarnefndu smátt og smátt og voru ýmist seldir úr landi eða höggnir upp sem brotajárn. Mátti heita að togaraútgerðin byggðist eingöngu á hinum nýja flota eftir 1950. Gat það ekki talist óeðlilegt þó nokkurt hlé yrði á togarahyggingum eftir hið mikla átak, sem gert var í þvi efni á fyrrgreindu tímabili, en óstöðugt efnaliagsástand innan- lands og ört vaxandi verðbólga, sem leiddi til vaxandi rekstrarkostnaðar, sem bitnaði harð- ast á sjávarútveginum, átti einnig sinn þátt i því hléi, sem varð á togarabyggingum um nokk- urra ára skeið. Fyrst var hafist handa aftur um byggingu togara til að hæta í skörð, sem orðið höfðu við skiptapa en síðar er um ný- byggingar að ræða, sem eru viðbót við þann flota, sem fyrir hendi er. Má gera ráð fyrir, að á þessu ári verði togaraflotinn orðinn 49 skip og rúmlestatalan 33.900. Er þá meðalstærð skip- anna orðin G92 rúmlestir. Er það rétt tvöfalt á við það, sem var árið 1940. Svipuð þróun og að því er togarana snertir, átti sér stað með vélbátaflotann. Ör fjölgun átti sér stað þegar eftir 1910 og var það livort- tveggja, að ný skip voru byggð óg vélar voru settar í opna báta og þilskip. Árið 1930 var tala vélskipa, annarra en togara, orðin 2G4, en þar með eru talin allmörg eimskip (línuveið- arar), sem voru um 30 að tölu en fór fækkandi næsta áratuginn. Vélbátaflotinn óx jafnt og þétt að tölu til en eftir styrjöldina varð einnig mikil breyting á stærð hátanna og fór ineðal- stærðin ört vaxandi. Þannig var meðalstærðin árið 1940 26 rúml. en var orðin 1950 um 48 rúml. og á þessu ári mun láta nærri, að hún verði 53 rúml. Rúmlestatala 737 skipa vélbáta- flotans á þessu ári mun vera nærri 40 þús. Aflamagnið. Aflahrögð geta sem kunnugt verið afar mis- jöfn frá ári til árs og eru þó sveiflur í afla- brögðum misjafnar hvað hinar ýmsu fiskteg- undir snertir. Alkunnugt er, að engin þeirra fisktegunda, sem veiðast hér við land hafa sýnt Afmælisblað VÍSIS VÍSIR 50 ÁRA 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.