Vísir - 14.12.1960, Page 19

Vísir - 14.12.1960, Page 19
rétt að geta þess, aS um þetta leyti var liafin vinnsla á fiskimjöli úr fiskúrgangi og vinnsla lýsis og mjöls úr síld, en langur tími leið áður en þessi vinnsla fengi nokkra verulega þýðingu. Að þvi er síldina snerti var aflinn lengi vel, að mestu saltaður og veiðin takmarkaðist oft af því hvað unt var að selja af saltsíld. Hag- nýting sjávaraflans hefir tekið miklum breyt- ingum, að nokkru á árunum fyrir seinni heims- styrjöldina en þó einkum eftir að henni lauk. Hafa þœr breytingar miðað fyrst og fremst að þvi að nýta til hins ýtrasta þann afla, sem á iand kemur, þannig að helzt fari ekkert til spillis. Skal liér fyrst minnst á sildina. Eins og áður segir var söltun síldarinnar frá upphafi hin helzta aðferð til hagnýtingar síldarinnar en tiltölulega snemma var þó einnig tekið að frysta síld og geyma þannig til beitu. Hafði það mikla þýðingu fyrir þorskveiðarnar með linu. Enda þótt saltsíldarframleiðslan hafi ávallt verið þýðingarmikil og sé enn, með þvi að sú hagnýting skapar mun meira verðmæti en ef um vinnslu mjöls og lýsis úr sildinni er að ræða, þá hefur þó ávallt verið svo, að sölu saltsildarinnar voru takmörk sett. Hin mikla aukning, sem orðið hefur á afiamagninu á þessu timabili var einungis hugsanleg með því, að síidin yrði unnin i verksmiðjum til fram- ieiðslu mjöls og lýsis. Sú starfsemi hófst að visu nokkuð á þriðja tug aldarinnar en nokkur skriður komst þó fyrst á hana þegar Síldar- verksmiðjur ríkisins hófu starfsemi sína árið 1930. Nokkru síðar réðust svo einstaklingar i það að byggja afkastamiklar sildarverksmiðjur. Næsta stóra skrefið i uppbyggingu síldarverk- smiðjanna var stigið að lokinni síðari lieims- styrjöldinni aðallega með byggingu nýrra verk- smiðja á vegum síldarverksmiðja ríkisins. Hér hefir hinsvegar aflaleysið á síldveiðunum á tímabilinu eftir styrjöldina komið afar þungt niður á þessum iðnaði, sem hefir ekki getað nýtt verksmiðjurnar nema að örlitlu broti. Á næstu mynd er sýnt hvernig afkastageta síld- arverksmiðjanna hefir þróast á tímabilinu, þ. e. þeirra verksmiðja, sem byggðar hafa verið til vinnslu sumarsildarinnar. Um allt land eru hinsvegar nú til verksmiðjur, sem geta unnið feitan fisk, svo sem síld og karfa, en þær hafa byggt tilveru sína á vinnslu fiskúrgangs og teljast þvi ekki hér til hinna eiginlegu síldar- verksmiðja. Undanfarin 10 ár getur ekki heitið, að um nýbyggingar á sviði síldarverksmiðja hafi verið að ræða, en nokkrar eldri verksmiðjur hafa verið fluttar til þangað, sem meiri von var til, að síld veiddist. Hinsvegar hafa átt sér stað endurbætur á eldri verksmiðjum, sem einkum eru í því fólgnar að nýta soðvatnið en með því eykst afurðamagn verksmiðjanna til muna. Má það raunar nú orðið teljast eitt frumskiiyrði fyrir liagkvæmum rekstri slíkra verksmiðja, að þær séu búnar soðvatnstækjum. Mönnum varð það snemma ljóst, að síldin sem veiddist fyrir Norðurlandi var óvenju gæðarik til söltunar, bæði vegna stærðar og fitu. Við upphaf þessa tímabils, sem hér um ræðir var saltsildarfram- leiðsla löngu orðinn fastur liður í liagnýtingu sildarinnar og fór vaxandi. Mjög var þó Afkösi síldarverksmiájanna 74000 74000 1915 1935 1940 1950 1960 misviðrasamt á sviði saltsíldarframleiðslunnar lengi vel. Kom þar til, að aflabrögð á veiðunum hafa jafnan verið miklum sveiflum liáð, eins og áður var getið og einnig liitt, að markaðir hafa oft verið breytilegir og ótryggir. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar til að koma meiri festu á um framleiðslu og sölu saltsíldarinnar. Má þar t. d. nefna Síldareinkasöluna, sem sett var á stofn árið 1928 og starfaði í 4 ár. Tókst sú tilraun iila. Frá 1934 hefir sildarútvegsnefnd lengstaf haft með höndum saltsildarsöluna og er svo enn. Auk saltsíldarframieiðslunnar á Norðurlandi og nú á seinni árum einnig á Austurlandi, hefir allt siðan 1935 átt sér stað tölverð síldarsöltun á Suðvesturlandi. Fyrst framanaf var þessi framleiðsla þó ótrygg, bæði vegna misjafnra aflabragða og ótryggra markaða. Á seinni árum hefir orðið breyting á. Síldveiðarnar á þessu svæði eru nú stöðugri en áður og sala salt- síldarinnar hefir einnig komist á fastari grund- völl. Saltsíldarframleiðslan hefir og sýnt er i eftirfarandi yfirliti. Norðurl. Suðvestiirl. Jnís. tn. ])ús. tn. verið eins Samtals þús. tn. 1925 254 — 254 1930 180 — 186 1935 82 52 134 1940 90 .—- 90 1945 77 18 95 1950 55 132 187 1955 175 94 269 1959 218 52 270 Hagnýting aflans á þorskveiðum hefir verið meiri breytingum háð en að þvi er síldar- aflann snertir. Eins og áður er getið var lengi svo, að meginhluti aflans var saltaður, utan þess, sem flutt var lit ísvarið, en sá útflutn- ingur hófst þegar fyrir fyrri heimsstyrjöld. Miklir erfiðleikar á saltfisksölunni, sem urðu á árunum eftir 1930 gerðu mönnum ljóst hvílik hætta var samfara þvi að hafa svo einhæfa framleiðslu og tekið var að athuga möguleika á X Slippfélagið ífReykjavík h.f. Símar: 10-123 (5 línur): Símnefni: Slippen. 1 Verzlunin Skipavörur Byggingavörur Verkfæri o. fl. Málningar verksmið j an Hempels-málning til skipa og húsa. Vitretex-málning (P.V.A.), innan- og utanhúss. Timbursalan Trjáviður til skipa og húsa. Vélahúsið Fullkomnar vélar fyrir alls konar trésmíði. Slippfélagið í Reykjavík h.f. Afmælisblað VlSIS VlSIR 50 ÁRA 19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.