Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Qupperneq 10
56 Tímarit íslenskra samvinnuíelaga.
félagi vegnaði betur sem hlutafélagi. pað væri a. m. k.
miklu hieinlegra gagnvart öðrum samvinnufélögum, að
nota ekki samvinnufélagsnafnið, ef >að er í raun og veru
meining félagsmanna og stjórnar að láta kaupstjórann
villast úr réttri leið, eins og hér hefir verið bent á.
í því eru uppsveitir Árnessýslu, nema
Kaupfélag Hreppamir. það á húseignir á Minniborg í
Grímsnesinga. Grímsnesi, og flytur mestalla þungavöru
sína á bifreiðum frá Reykj avík. Framan
af gekk félaginu illa, og voru sumir farnir að ráðleggja
bændum að slíta félaginu, svíkja lánardrotna sína, einkum
Sambandið, og skifta síðan verslun sinni milli kaupmanna
í höfuðstaðnum. þetta vildu bændur ekki. Kváðust mundu
greiða skuldir sínar og engra uppgjafa beiðast. Hétu þeir
hver öðrum að standa nú enn fastar saman en fyr. Hefir
félaginu stórfarið fram; auðséð, að skuldir muni minka og
hagur þess allur batna. Kaupstjórinn, Stefán Diðriksson,
hinn mesti elju- og athafnamaður, annast aðflutninga og
hefir til þess tvo flutningabíla. Bróðir hans, Páll, nýlega
útskrifaður úr Samvinnuskólanum, er bókhaldari. Stefán
lætur bílana vera í ferðum svo að segja dag og nótt alt
sumarið og fram á vetur, þar til snjóar hamla. Flytur ná-
lega allar vörur úr kaupstað fyrir bændur í Grímsnesi,
Laugardal og Biskupstungum. Auk þess nota bændur í
þessum sveitum bíla kaupfélagsins til mannflutninga, bæði
fyrir sveitafólkið í kaupstaðarferðir og kaupafólk, sem
kemur og fer í sumarvist. þessar ferðir verða bændum
mikið ódýrari en að fara á hestum eða í bifreiðum gróða-
félaga í Reykjavík. Stundum gat að líta í sumar sem leið
10—15 manns, karla og konur, sitja ofan á allstóru æki
austur að Borg. það var skemtilegur, amerískur blær yfir
þessu ferðalagi, gekk fljótt, var ódýrt, og enginn tepru-
skapur í neinu. Auk þess flutti kaupfélagið mikið af
sveitavörum til Reykjavíkur, ull, nýtt kjöt, skyr, smjör og
rjóma. Jafnvel eitthvað af lifandi fé. það má nú gera sér
vonir um, að Grímsnesfélagið rétti fljótt við, og að sam-