Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.10.1923, Blaðsíða 94
140
Tímarit íslenskra samvinnufélaga.
einnig örðugan róður. Verslunin við þá er einnig stopul, og
margir þeirra hafa orðið að sigla í strand, með brotinn kjöl
eða heilan. Eina leiðin til þess, að Héraðsbúar fái sterka
verslun og heilbrigða, er sú, að þeir snúi sér allir í sömu
áttina. En til þess þarf bættar samgöngur.
Ógerlegt virðist, sökum kostnaðar, að gera höfn við
Héraðsflóa. Eina ráðið til aðdráttaléttis er að flytja alla
þungavöru á vögnum yfir Fagradalsbraut til Egilsstaða.
það starf mundi ef til vill heppilegast að unnið væri af sér-
stökum ökumönnum.
Ódýrast mundi að flytja mikið af flutningi til fjölda
bæja á Héraði með mótorbátum eftir Lagarfljóti. Reynsl-
an hefir sýnt, að mótorbátar á Lagarfljóti bera sig vel, ef
girt er fyrir slík óhöpp og slys, sem bagað hafa að und-
anförnu.
pá verða Héraðsbúar einnig að fá sína akvegi frá Eg-
ilsstöðum og Lagarfljótsbrú beggja vegna fljótsins, alla
leið niður í Hjaltastaðaþinghá og vestur í Jökulsárhlíð, svo
allir geti ,líkt og víðast í öðrum stærri bygðum þessa lands,
ekið þungavöra sinni í hlað heim eftir aðalbrautum og
ruðningavegum þeim, er alstaðar fylgja aðalbrautunum og
kvíslast um sveitirnar, og sem sveitarmenn leggja sjálfir.
Mundi þá höfuðböl verslunarinnar á Héraði að öllum lík-
indum verða á Egilsstöðum, og allur klyfjaflutningur á
fjallvegum hverfa, eins og nú er orðið víða um landið. Og
varla mun þá hjá því fara, að eitt kaupfélag næði þá mest-
allri versluninni og yrði aðalmenningarstöð og fjárhags-
stöð Héraðsins.
Næst samgönguvandræðunum er t o r t r y g n i n
mesta mein kaupfélagsskaparins á Austurlandi. Félögin eru
of mörg og of smá. Mundi eigi heppilegra, að félögin væru
stærri, þannig, að sama félag næði yfir margar smáhafnir,
líkt eins og t. d. Kaupfélag Eyfirðinga nær yfir allmarga
hafnarstaði við Eyjafjörð, en hefir aðsetur sitt á Akureyri
og aðeins útibú á hinum minni höfnum? Stjórnarkostnaður
verður minni og tortrygnin ef til vill minni með völdum og
viðurkendum endurskoðendum. Austlendingar benda jafn-